Ungur knattspyrnumaður myrtur

Ezekiel Williams var myrtur.

Ezekiel Williams var myrtur. Ljósmynd/Hendon

Tveir menn hafa verið ákærðir fyrir morð í kjölfar dauða knattspyrnumannsins Ezekiel Williams, miðjumanns Hendon FC, að því er lögreglan í Thames Valley staðfesti.

Williams, 26 ára, lést á sjúkrahúsi eftir líkamsárás í Milton Keynes. Við krufningu var bráðabirgðaniðurstaðan sú að Williams hefði látist af völdum höfuðáverka.

Sameull Hussein, 28 ára, og Arman Uddin, 21 árs, voru báðir ákærðir fyrir morð í kjölfarið.

Þriðji maðurinn, þrítugur að aldri, var látinn laus gegn tryggingu eftir að hafa verið handtekinn grunaður um að hafa aðstoðað meintu árásarmennina.

Williams gekk til liðs við Hendon, sem leikur í áttundu efstu deild Englands, í september.

Félagið lýsti honum sem „hógværum, yfirlætislausum og örlátum einstaklingi með mikið skopskyn“.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅