Eignast yfir fimm prósent í Brimi
Breytingar á lista stærstu eigenda Brims tengjast uppgjöri vegna kaupa félagsins á Lýsi. Samsett mynd
Eignarhlutur Ívars ehf. í útgerðarfélaginu Brimi stendur í 5,29 prósentum samkvæmt upplýsingagjöf félagsins til kauphallar.
Samkvæmt reglum Kauphallarinnar er svokölluð flöggunarskylda á eignarhlut félaga þegar hann fer yfir ákveðin mörk.
Ívar ehf. er í meirihlutaeigu Katrínar Pétursdóttur og fjölskyldu og hélt áður utan um eignarhlut í Lýsi, sem Brim hefur keypt.
Gera má ráð fyrir að breytingin á eignarhlut í Brimi tengist uppgjöri á þeim viðskiptum, en fram hefur komið að greiðsla vegna þeirra færi til helminga fram í reiðufé og hlutabréfum í Brimi.
Í flögguninni í Kauphöll kemur fram að félagið Ívar ehf. eigi nú 103.454.517 hluti í Brimi, en samkvæmt síðasta skráða verði nemur verðmæti hlutarins tæplega 9,3 milljörðum króna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗