Messi skrifaði söguna í Bandaríkjunum um helgina - Sá fyrsti til að afreka þetta

Lionel Messi, leikmaður Inter Miami, hefur enn á ný skrifað nafn sitt í sögubækurnar eftir frábært tímabil í bandarísku MLS-deildinni.

Argentínumaðurinn, sem er 39 ára, varð fyrsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar til að vinna gullskóinn tvö tímabil í röð.

Messi skoraði 26 mörk í 31 leik og lagði auk þess upp 17 mörk. Hann kom því að 43 mörkum á tímabilinu, meira en nokkur annar leikmaður deildarinnar.

Messi gæti einnig orðið fyrsti leikmaðurinn til að vera valinn besti leikmaður MLS þrjú ár í röð.

Þrátt fyrir frammistöðu hans endaði Inter Miami 17 stigum á eftir Nashville í austurdeildinni.

Næsta verkefni Messi og félaga er einvígi gegn Columbus Crew í úrslitakeppni MLS síðar í mánuðinum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅