Sendir frá sér hjartnæma kveðju um sorgina í kjölfar andláts bróður síns: „Viss um að hún muni gleypa mig í heilu lagi“
Presley Gerber lést á meðferðarstofnun í Los Angeles þann 20. september, 27 ára að aldri. Systir hans, Kaia, 25 ára, deildi um helgina hjartnæmum skilaboðum um sorgina, rúmum mánuði eftir andlátið.
Á Instagram birti Kaia tilvitnun úr bókinni The Year of Magical Thinking eftir Joan Didion, sem hljóðar svo: „Sorgin, þegar hún kemur, er alls ekki eins og maður bjóst við. Sorgin þekkir enga fjarlægð. Hún kemur í bylgjum, í köstum, sem skyndilegur ótti sem slær fótunum undan manni, blindar augun og þurrkar út hversdagslífið.“
„Ég elska þig meira en allt, til tunglsins og til baka og aftur til baka, að eilífu, stóri bróðir,“ skrifaði hún þann 18. október, ásamt röð ljósmynda og myndskeiða af systkinunum saman.
„Ég finn engin orð. Og kannski er það smá huggun í því að við þurftum aldrei á þeim að halda. Orðin bregðast, þau þrengja að, þau reyna að draga saman en orðin ná aldrei að fanga sannleikann. Og hversu barnaleg var ég að halda að tungumálið gæti staðið ofar sorginni? Ég hef lesið allar bækurnar en sit eftir án svara. Orð mín duga hvergi til að lýsa eirri gríðarlegu sorg sem fylgir því að missa þig,“ skrifaði hún nú um helgina..
„Ég elskaði þig meira en ég vissi hvað ég ætti að gera við. Og nú þegar sorgin á sér engan augljósan stað til að fara á, er ég viss um að hún muni gleypa mig í heilu lagi.“
Í viðtali við Vogue í september 2026 talaði Kaia um „áratugslanga baráttu bróður hennar við fíkniefnaneyslu“ og bætti við: „Þegar eitthvað slíkt gerist í fjölskyldu, þá slær það alla út af laginu. Ég held að það sé líka ástæðan fyrir því að ég fór að líta á mig sem þá „auðveldu“, þá sem olli engum vandræðum og vildi aldrei biðja um hjálp. Því mér fannst það verða of mikið, að eiga tvö börn sem þyrftu á aðstoð að halda.“
Presley hafði talað opinskátt um andlega heilsu sína. Í hlaðvarpsþættinum Studio 22 árið 2023 sagði hann: „Þar sem ég hef sjálfur glímt við andleg veikindi, þunglyndi og ýmislegt annað sem því fylgir, þá finnst mér að ef ég get hjálpað einni manneskju eða hundrað manneskjum að komast upp úr því ástandi sem ég var sjálfur í á tímabili, þá sé það í raun allt sem ég þarf að gera.“
Systkinin ásamt foreldrum sínum.
Cindy Crawford og Rande Gerber minntust sonar síns í hjartnæmri yfirlýsingu
„Við erum gjörsamlega niðurbrotin yfir því að hafa misst okkar ástkæra son og bróður. Við teljum okkur afar lánsöm að hafa fengið að hafa Presley í lífi okkar í 27 ár,“ skrifaði móðir hans, Cindy Crawford, á Instagram þann 19. október. „Hann er ljúf og fögur sál sem elskaði og er elskuð nú og að eilífu. Við erum svo stolt af því hvernig hann kom fram í heiminum; af góðmennsku hans og viðkvæmni. Við erum þakklát fyrir þann mikla kærleika og stuðning sem okkur hefur borist frá svo mörgum sem þekkja og elska fjölskyldu okkar og jafnvel frá ókunnugu fólki sem finnur til með okkur í sorginni. Þar til við sjáumst aftur, elsku drengurinn okkar. Við elskum þig að eilífu – mamma, pabbi og Kaia.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗