Dæmdur nauðgari sætti sig ekki við brottvísun úr landi
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa manni frá Jamaíka úr landi og ákvarða honum endurkomubann. Umræddur maður var dæmdur fyrir nauðgun en taldi það ósanngjarna ráðstöfun að vísa honum úr landi. Nefndin staðfesti einnig ákvörðun stofnunarinnar um að fella niður frest hans til sjálfviljugrar brottfarar.
Maðurinn hafði verið með dvalarleyfi hér landi síðan 2019 en hann kom hingað til lands fyrst á unglingsaldri.
Hann var ákærður fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga en samkvæmt henni gerist hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann án samþykkis hans sekur um nauðgun og skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum.
Maðurinn var sakfelldur í héraðsdómi en brot hans var þar skilgreint sem blygðunarsemisbrot og hlaut hann skilorðsbundinn dóm. Landsréttur sakfelldi hann hins vegar fyrir nauðgun og dæmdi hann í tveggja ára fangelsi og Hæstiréttur staðfesti þann dóm, undir lok árs 2024.
Í júlí 2025 vísaði Útlendingastofnun manninum úr landi og setti hann í 16 ára endurkomubann og felldi niður frest hans til sjálfviljugrar brottfarar.
Maðurinn kærði brottvísunina meðal annars á þeim grunni að hann væri saklaus og væri með til skoðunar að leita til Mannréttindadómstóls Evrópu. Í kærunni voru einnig gerðar ýmsar athugasemdir við málsmeðferð stofnunarinnar.
Andmæli
Var í kærunni fullyrt að andmælaréttur mannsins hefði ekki verið virtur.
Var einnig fullyrt að ekki hefði verið tekið tillit til málsatvika og aðstæðna hans. Hann hefði trygga atvinnu, þrátt fyrir að hafa hafið afplánun, og öll hans nánasta fjölskylda hans væri á Íslandi. Á Jamaíka biði hans ekkert og hann hafi flust þaðan á barnsaldri.
Brottvísun myndi þar að auki hafa óafturkræf áhrif á fjölskyldu hans þar sem móðir hans hefði sagst ætla að fylgja honum til Jamaíka og taka hálfbróður hans á barnsaldri, sem fæddur væri á Íslandi, með sér. Það myndi enda með skilnaði móðurinnar og íslensks eiginmanns hennar. Þar með uppfyllti brottvísunin ákvæði útlendingalaga um ósanngjarna ráðstöfun.
Staðfest
Í niðurstöðu kærunefndar útlendingamála segir að það breyti engu þótt maðurinn hafi fyrst verið sakfelldur fyrir blygðunarsemisbrot en síðan nauðgun. Það rýri ekki alvarleika brots mannsins. Niðurstaða Hæstaréttar sé endanleg og Endurupptökudómur hafi hafnað því að taka málið upp. Skilyrðum útlendingalaga um brottvísun vegna dóms sem feli í sér eins árs fangelsisvist eða meira sé þar með fullnægt.
Nefndin segir einnig að gögn málsins bendi ekki til annars en að andmælaréttur mannsins hafi verið virtur og hann fengið nægt ráðrúm til andmæla.
Nefndin segir að hægt sé að taka undir með manninum að tengsl hans við Ísland séu rík. Þó eigi hann hvorki maka né börn hér á landi og fjölskyldumeðlimir hans sem búi hér á landi séu því ekki hans nánustu aðstandendur, í skilningi útlendingalaga.
Gögn málsins beri með sér að maðurinn eigi ekki önnur mál í kerfum lögreglunnar. Hann hafi aftur á móti verið sakfelldur fyrir alvarleg brot þar sem hann hafi verið dæmdur til að tveggja ára fangelsisrefsingar. Brot sem geti varðað allt að 16 ára fangelsi. Brot mannsins hafi átt sér stað um einu og hálfu ári eftir komu hans til landsins og hann þá verið orðinn fullorðinn. Þá hafi brot hans beinst að lífi, heilsu og friðhelgi brotaþola, sem hafi verið undir lögaldri.
Maðurinn hafi þar að auki á ævi sinni búið lengur á Jamaíka en Íslandi. Ekkert bendi til þess að hann og fjölskylda hans geti ekki sameinast á Jamaíka. Þrátt fyrir að maðurinn hafi töluverð tengsl hér á landi og hafi sýnt aðlögun að samfélaginu vegi alvarleiki brots hans þyngra.
Brottvísun mannsins úr landi er því staðfest. Kærunefnd útlendingamála styttir hins vegar endurkomubannið úr 16 árum í 8 meðal annars á grundvelli þess að um eina brot mannsins sé að ræða, ungs aldurs hans þegar það var framið, þess tíma sem liðinn sé frá brotinu og jákvæðrar aðlögunar mannsins að samfélaginu eftir það. Nefndin staðfestir einnig að fella niður frest mannsins til að fara sjálfviljugur úr landi og honum verður því fylgt af landi brott.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗