Gekk að eiga fyrrverandi kærustu eftir fangelsisvist
Rapparinn William Junior Maxwell II, betur þekktur sem Fetty Wap, gerði garðinn frægan með laginu Trap Queen. AFP
Rapparinn Fetty Wap gekk að eiga Alexis Skyy við íburðarmikla athöfn í New Jersey um helgina. Þau trúlofuðu sig í júlí eftir að hafa tekið saman á ný í kjölfar þess að hann losnaði úr fangelsi í janúar.
Skyy birti myndir frá brúðkaupinu á Instagram undir yfirskriftinni „Herra og frú Maxwell“.
Brúðurin klæddist hvítum satínkjól með blúndum og gegnsæjum ermum og bar sítt slör. Brúðguminn var einnig alklæddur hvítu en brúðarmeyjarnar klæddust bleikum satínkjólum.
Hættu saman fyrir áratug
Þau Fetty Wap og Skyy, sem er 32 ára, voru áður saman í um tvö ár en slitu sambandinu árið 2016. Leiðir þeirra lágu saman á ný eftir fangelsisvist rapparans og í sumar bað hann hennar innan um bleikar rósir og kertaljós.
Fetty Wap, sem er 35 ára og heitir réttu nafni Willie Junior Maxwell II, er þekktastur fyrir lagið Trap Queen frá árinu 2015.
Hann var dæmdur í sex ára fangelsi í maí 2023 eftir að hafa játað aðild sína að skipulagðri sölu og dreifingu á eiturlyfjum. Hann losnaði úr fangelsi í janúar á þessu ári og sagðist þá vilja láta gott af sér leiða, meðal annars með því að styðja börn í viðkvæmri stöðu og bæta aðgengi þeirra að menntun.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/30/60/1306037.jpg)