Hraunar yfir Carrick

Michael Carrick á hliðarlínunni í gær.

Michael Carrick á hliðarlínunni í gær. AFP/Darren Staples

Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði Manchester United, sakaði Michael Carrick um að tala „eins og stjórnmálamaður“ eftir ótrúlegt 4:4-jafntefli við Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.

„Hann talar mikið en segir lítið. Ég veit ekki hvort það er taktík. Eins og stjórnmálamaður,“ sagði Keane á Sky Sports.

„Hann segir í sífellu að við þurfum að þétta okkur og að það séu atriði sem þarf að vinna í. En þeir ættu að drífa sig í því.

Hvað eigum við von á að breytist á næstu vikum og mánuðum? Í hverju eru þeir að vinna? Þeir þurfa að gera miklu betur en þetta,“ bætti hann við.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅