Fjármálaráðuneytið orðið of valdamikið

Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi fjármálaráðherra, segir að samskipti stjórnar Landsvirkjunar við fjármálaráðuneytið hafi tekið óeðlilegum breytingum eftir að ný stjórn tók við fyrirtækinu. Hann telur að tíð fundahöld stjórnarinnar í ráðuneytinu, meðal annars án vitundar forstjóra fyrirtækisins, veki alvarlegar spurningar um pólitísk afskipti af starfsemi Landsvirkjunar.

Þetta kemur fram í Spursmálum þar sem Sigurður Ingi og Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi stjórnarmaður í Landsvirkjun, ræða brotthvarf Harðar Arnarsonar úr forstjórastóli fyrirtækisins og samskipti stjórnarinnar við Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra.

Sigurður Ingi segir að áður hafi ríkar hefðir gilt um samskipti stjórnar Landsvirkjunar og ráðherra sem fór og fer með eignarhlut ríkisins.

„Það var svona heil hefð og óskrifuð lög að forstjórinn og stjórnarformaðurinn, til að mynda í Landsvirkjun, kæmu einu sinni, eftir atvikum tvisvar, ef því hversu mikið gekk á, á fund fjármálaráðherra.“

Að loknum slíkum fundum hafi stjórnarformaður og forstjóri upplýst stjórnina um það sem þar fór fram.

„Hvað er stjórnin að gera í tíma og ótíma?“

Sigurður Ingi segir að honum hafi strax þótt varhugavert þegar ríkisstjórnin breytti fyrirkomulagi við skipan stjórna ríkisfyrirtækja.

Áður hafi þingflokkar meirihluta og minnihluta tilnefnt fulltrúa en nú skipi fjármálaráðherra alla stjórnarmenn að fengnum tillögum valnefndar.

„Það sem ég óttaðist var að annars vegar væri þessi lýðræðislega tenging við Alþingi tekin burt. Ég óttaðist að það yrði of einsleitt fólk sem myndi setjast í stjórnina og svo hafði maður auðvitað áhyggjur af því að vald fjármálaráðherrans yfir stjórninni yrði einhvern veginn of mikið.“

Hann segist hafa komið þessum áhyggjum á framfæri við bæði forsætisráðherra og fjármálaráðherra vorið 2025.

Nú telji hann að þróunin staðfesti að áhyggjurnar hafi verið réttmætar.

„Hvað er stjórnin að gera í tíma og ótíma inni í fjármálaráðuneytinu? Þegar stjórnin er skipuð til þess að stjórna fyrirtækinu á óháðan, sjálfstæðan hátt án þess að pólitíkin sé að skipta sér af.“

Slík samskipti aldrei tíðkast

Álfheiður Ingadóttir, sem sat í stjórn Landsvirkjunar í samtals 14 ár, tekur undir gagnrýni Sigurðar Inga.

Hún segir að samskipti stjórnar og ráðuneytis hafi áður verið í föstum skorðum og að einungis stjórnarformaður og forstjóri hafi átt erindi á fund ráðherra fyrir hönd fyrirtækisins.

„Þessir tveir aðilar fóru á fund ráðherra reglubundið einu sinni á ári. Nú, og ef eitthvað kom upp á og var nauðsynlegt, þá fóru þeir og komu síðan og gáfu bara skýrslu og það var bókað.“

Hún segir fráleitt að stjórnarmenn hafi ítrekað fundað í ráðuneytinu um málefni sem eigi heima innan fyrirtækisins.

„Það datt engum í hug að vera að hlaupa niður í ráðuneyti í tíma og ótíma og blaðra þar um skuldabréf eða ágreining við önnur fyrirtæki í ríkiseigu.“

Álfheiður vísar þar meðal annars til fundar með fjármálaráðherra 6. janúar síðastliðinn, þar sem rætt hafi verið um skuldabréf vegna kaupa Landsvirkjunar á Landsneti og ágreining fyrirtækjanna.

Níu fundir um stjórnarhætti?

Sigurður Ingi gerir jafnframt athugasemdir við þá skýringu ráðherrans að fundahöldin hafi fyrst og fremst snúist um góða stjórnarhætti.

Hann bendir á að reglur um starfsemi stjórnar Landsvirkjunar séu að verulegu leyti lögbundnar og að stjórnarmenn eigi að þekkja þær.

„Þú þarft ekki níu fundi í Stjórnarráðinu, í fjármálaráðuneytinu, með meira og minna allri stjórninni til þess að ræða það.“

Hann telur því augljóst að fleiri mál hafi verið til umræðu en stjórnarhættir einir og sér.

Sigurður Ingi segir að breytingarnar á samskiptum ráðuneytis og stjórnar veki spurningar um sjálfstæði Landsvirkjunar og hvort pólitísk afskipti hafi haft áhrif á þá atburðarás sem leiddi til brotthvarfs Harðar.

Viðtalið við Sigurð Inga og Álfheiði má nálgast í heild sinni hér:

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅