Vilji til að reisa gagnaver í Ölfusi
Bæjarráð samþykkti viljayfirlýsingu um að reisa gagnaver. mbl.is/Árni Sæberg
Viljayfirlýsing um mögulegt gagnaver í Ölfusi var samþykkt samhljóða á bæjarráðsfundi á fimmtudag. Um er að ræða samkomulag milli sveitarfélagsins og Glacier Grid ehf. um skilyrt og tímabundið lóðarvilyrði vegna áforma fyrirtækisins um uppbyggingu gagnavers á iðnaðarsvæðinu Sandi I norðan Suðurstrandarvegar. Samkvæmt áætlun Glacier Grid gætu tugir varanlegra starfa orðið til við fyrsta áfanga af þremur alls, að því er fram kemur í fundargerð bæjarráðs.
Segir þar að samkomulagið kveði á um 12 mánaða vilyrði frá undirritun. Ráðgert er að sá fyrsti kalli á 30 MW orku og lóðarþörf upp á sex hektara. Heildarlóðarþörf verði um 16 hektarar.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗