Hraunar yfir Carrick
Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði Manchester United, sakaði Michael Carrick um að tala „eins og stjórnmálamaður“ eftir ótrúlegt 4:4-jafntefli við Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.
„Hann talar mikið en segir lítið. Ég veit ekki hvort það er taktík. Eins og stjórnmálamaður,“ sagði Keane á Sky Sports.
„Hann segir í sífellu að við þurfum að þétta okkur og að það séu atriði sem þarf að vinna í. En þeir ættu að drífa sig í því.
Hvað eigum við von á að breytist á næstu vikum og mánuðum? Í hverju eru þeir að vinna? Þeir þurfa að gera miklu betur en þetta,“ bætti hann við.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗