Þörf á stórsókn en ekki niðurskurði

Fram kemur að leikskólabörn eigi það besta skilið.

Stjórn Félags foreldra leikskólabarna í Reykjavík (Samleik-R) segist í tilkynningu lýsa yfir þungum áhyggjum af fyrirhuguðum niðurskurði til reksturs leikskóla í Reykjavík sem fyrir liggur í fjárhagsáætlun borgarinnar.

Stjórnin óskar eftir frekari sundurliðun og upplýsingum um niðurskurðinn og hvað felst í honum.

„Samkvæmt fjárhagsáætlunni er gert ráð fyrir rúmlega tveggja milljarða króna niðurskurði í menntamálum borgarinnar, í málaflokki þar sem öllum ber saman um að blása þurfi til stórsóknar. Af þessum tveimur milljörðum er um 960 milljón króna niðurskurður enn óútfærður,“ segir í tilkynningunni.

„Í þessum málaflokki eru fjárframlög að mestu leyti bundin í launakostnaði og samningum. Því er raunverulega hætta á að niðurskurður af þessari stærðargráðu komi niður á faglegu starfi og þjónustu. Einnig er gert ráð fyrir að draga úr nýfjárfestingum í leikskólum, en Reykjavíkurborg stendur í dag fyrir uppsafnaðri þörf á uppbyggingu og viðhaldi.“

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. mbl.is/Karítas

Fram kemur í tilkynningunni að Samleik hafi gagnrýnt breytingarnar sem voru gerðar með svokallaðri Reykjavíkurleið í leikskólamálum sem fólu í sér hækkanir gjalda og skerðingu á leikskólaþjónustu. Stjórnin telur því jákvætt að gjaldskrár leikskóla verði ekki hækkaðar umfram 2,5% en krefst þess um leið að ekki verði búin til ný gjöld innan leikskólanna eða þjónusta skert með styttri opnunartíma eða frekari lokunum.

„Eitt af því sem var jákvætt við Reykjavíkurleiðina var að bæta við stöðugildum umsjónarfólks leikskólahúsnæðis sem var ætlað að sjá um minniháttar viðhald og daglegan rekstur húsnæðis. Þessi stöðugildi hafa ekki enn verið innleidd og Samleik fer fram á að þau verði ekki niðurskurði að bráð. Stjórnendur og starfsfólk leikskóla eiga að geta einbeitt sér að faglegu starfi en ekki að viðhaldi húsnæðisins,“ segir í tilkynningunni, þar sem áhersla er lögð á að leikskólabörn eigi það besta skilið og að þörf sé á framsýnni uppbyggingu í leikskólamálum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅