Undarlegt atvik á Old Trafford í gær - Fagnað þegar leikmaður fór af velli og Carrick bregst við
Michael Carrick, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur komið Diogo Dalot til varnar eftir að stuðningsmenn félagsins púuðu á Portúgalann í dramatísku 4-4 jafntefli gegn Aston Villa.
Dalot átti erfiðan dag en hann gerði mistök í fyrsta marki Villa og braut síðan af sér innan vítateigs þegar staðan var 2-2.
Þegar honum var skipt út af á 66. mínútu fögnuðu stuðningsmenn United hástöfum og púuðu á varnarmanninn þegar hann gekk af velli.
Carrick var ekki sáttur við þessi viðbrögð.
„Við verðum að fara varlega með svona hluti. Ég skil gremju og vonbrigði stuðningsmannanna, en leikmennirnir eru jafn svekktir og allir aðrir,“ sagði Carrick.
🔊 Just listen to Old Trafford when it was announced that Diogo Dalot was being subbed off. https://t.co/Z2LXokLdkY
— Football Tweet ⚽ (@Footballtweet) November 8, 2026
„Diogo leggur sig alltaf allan fram. Hann hefur spilað margar stöður fyrir okkur og staðið sig vel.“
Carrick viðurkenndi að Dalot hefði gert mistök en hrósaði viðhorfi hans.
„Hann veit að hann gaf víti. Hann hefði getað gert betur, en honum er gríðarlega annt um félagið og gefur alltaf allt sitt.“
Patrick Dorgu kom inn á fyrir Dalot og jafnaði metin á 96. mínútu.
Carrick staðfesti einnig að Harry Maguire hefði þurft að yfirgefa völlinn í hálfleik vegna krampa í bakvöðvum.
United hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu og pressan á bæði leikmenn og þjálfara fer vaxandi.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗