Brotnaði niður í viðtali: Mér líður ekki vel
Mark Allen, fyrrverandi efsti maður heimslistans í snóker, hefur greint frá því að hann hafi dvalið í tíu vikur á geðdeild áður en hann sneri aftur til keppni.
„Ég hef dvalið síðustu tíu vikur á geðdeild og útskrifaði mig loks sjálfur til að reyna að spila í Belfast,“ skrifaði Norður-Írinn, sem er fertugur, á samfélagsmiðlum.
Allen brotnaði niður í viðtali við TNT Sports eftir leikinn við Jordan Brown á opna norðurírska meistaramótinu og sagðist ef til vill aldrei spila aftur sem atvinnumaður.
„Mér líður ekki vel, en ég hef sætt mig við að svona er staðan núna,“ skrifaði hann í kjölfarið.
„Ég er ekki búinn að gefast upp! Ég hef svo margt til að lifa fyrir og þetta er aðeins upphafið að nýju ferðalagi mínu,“ bætti hann við.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗