Þetta eru eftirréttur og konfektmoli ársins

Eftirréttur ársins eftir Þorlák Sigurðsson og konfektmoli ársins eftir Írisi Nhi Einardóttur. Epli og dökkt súkkulaði koma við sögu í báðum verðlaunaverkunum. Samsett mynd/Aðsend

Þorlákur Sigurðsson hjá Flóru veitingum og Íris Nhi Einardóttir, bakari og kökudeildarstjóri hjá IKEA, hlutu fyrstu verðlaun í keppnunum Eftirréttur ársins 2026 og Konfektmoli ársins 2026. Epli og dökkt súkkulaði voru meðal hráefna í báðum verðlaunaverkunum.

Keppnirnar fóru fram á Stóreldhússýningunni í Laugardalshöll á vegum Garra. Dómnefnd mat meðal annars bragð, framsetningu, tæknilega útfærslu og frumleika, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Þorlákur Sigurðsson hjá Flóru veitingum hlaut fyrstu verðlaun í keppninni Eftirréttur ársins 2026. Epli og dökkt súkkulaði voru í aðalhlutverki í verðlaunaréttinum hans. Ljósmynd/Aðsend

Epli og súkkulaði í aðalhlutverki

Í eftirrétti Þorláks var dökk súkkulaðimús á möndlupralíni með vanillukremi, ásamt eplamús og eplamauki í skel með svissneskum marengs. Þar voru einnig soðin epli, eplaís, eplasalat og vatnsdeigsbolla með eplafyllingu, auk möndluganas, heitrar karamellu og tempraðs súkkulaðis.

Eftirréttur Þorláks Sigurðssonar hlaut fyrstu verðlaun í keppninni Eftirréttur ársins 2026. Þar mætast meðal annars dökk súkkulaðimús, möndlupralín, epli í ólíkum útfærslum og heit karamella. Ljósmynd/Aðsend

Tómas Leo Kristjánsson, nýsveinn frá Menntaskólanum í Kópavogi sem starfar á Matarkjallaranum, varð í öðru sæti. Hann bauð meðal annars upp á mille-feuille með súkkulaðikremi, Paris-Brest með möndlupralíni, bæverskan búðing með ferskjum og apríkósuís.

Mille-feuille með súkkulaðikremi, Paris-Brest með möndlupralíni, bæverskur búðingur með ferskjum og apríkósuís færðu Tómasi Leo Kristjánssyni annað sætið í keppninni Eftirréttur ársins 2026. Ljósmynd/Aðsend

Þriðju verðlaun hlaut Natasja Keincke hjá Bakarameistaranum. Hún sótti innblástur í París árið 1920.

„Ég reyndi að halda mig sem mest við þemað á sama tíma og ég bætti við örlitlum glæsileika og nútímalegu ívafi. En umfram allt snerist þetta um að hafa gaman af verkefninu og njóta sköpunarferlisins,“ segir Natasja.

Eftirréttur Natasju Keincke hjá Bakarameistaranum hlaut þriðju verðlaun. Hún sótti innblástur í París árið 1920 og gaf réttinum nútímalegt ívaf. Ljósmynd/Aðsend

Nemaverðlaun fyrir smjördeigshorn og ávexti

Aron Elvar Bjarkason, matreiðslunemi á Hótel Geysi, hlaut Nemaverðlaun Garra í eftirréttakeppninni.

Aron Elvar Bjarkason, matreiðslunemi á Hótel Geysi, hlaut Nemaverðlaun Garra í keppninni Eftirréttur ársins 2026. Ljósmynd/Aðsend

Hann bar fram smjördeigshorn fyllt með heslihnetupralíni og súkkulaðikremi, með græneplamús og eplagljáa. Með fylgdu appelsínukrapís, apríkósuhlaup, pera soðin með sítrónutímíani, dökkt súkkulaðiganas, fíkjugel og stökkur súkkulaðimulningur.

Smjördeigshorn með heslihnetupralíni og súkkulaðikremi var meðal þess sem Aron Elvar Bjarkason bar fram í eftirrétti sínum, sem hlaut Nemaverðlaun Garra. Með fylgdu meðal annars græneplamús, appelsínukrapís og pera soðin með sítrónutímíani. Ljósmynd/Aðsend

Græn epli og franskt eplabrandí

Sigurmoli Írisar í keppninni Konfektmoli ársins ber nafnið Pomme Verte. Í honum sameinast dökkt súkkulaði, græneplahlaup úr Granny Smith-eplum, ganaskrem með Calvados, frönsku eplabrandíi, og stökkt lag af feuilletine-kexflögum.

Íris Nhi Einardóttir, bakari og kökudeildarstjóri hjá IKEA, hlaut fyrstu verðlaun í keppninni Konfektmoli ársins 2026 fyrir molann Pomme Verte. Ljósmynd/Aðsend

Framsetningin er innblásin af art déco-stílnum í París á þriðja áratug síðustu aldar.

Pomme Verte eftir Írisi Nhi Einardóttur var valinn konfektmoli ársins 2026. Í molanum sameinast dökkt súkkulaði, græneplahlaup, ganaskrem með Calvados og stökkt kexlag. Ljósmynd/Aðsend

Emilie Frederiksen, konditornemi hjá Bakarameistaranum, hlaut bæði önnur verðlaun og Nemaverðlaun Garra í konfektkeppninni. Í mola hennar komu saman appelsína, negull, apríkósa og karamelluhúðaðar möndlur. 

Appelsína, negull, apríkósa og karamelluhúðaðar möndlur sameinast í konfektmolum Emilie Frederiksen. Hún hlaut bæði önnur verðlaun og Nemaverðlaun Garra í keppninni Konfektmoli ársins 2026. Ljósmynd/Aðsend

Guðrún Erla Guðjónsdóttir, bakari og konditor hjá Mosfellsbakaríi, varð í þriðja sæti. Moli hennar var með dökkri súkkulaðiskel, apríkósuhlaupi, súkkulaðiganas og heslihnetupralínbotni krydduðum með tonkabaunum.

Námsferð til Frakklands

Sigurvegarar keppnanna hljóta náms- og kynnisferð til Parísar á vegum Garra og Cacao Barry. Í ferðinni sækja þau námskeið hjá Cacao Barry Chocolate Academy í Meulan undir leiðsögn Kent Vendelbo Madsen og Tor Stubbe.

Dómarar voru Hrefna Sætran, yfirdómari í Eftirrétti ársins, Axel Þorsteinsson, Andrés Björgvinsson, Vigdís Mi Diem Vo og Sigurður Laufdal.

Axel Þorsteinsson, Þorlákur Sigurðsson, Andrés Björgvinsson og Hrefna Sætran þegar Þorlákur tók við verðlaunum í keppninni Eftirréttur ársins 2026. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅