Tólf látist í umferðinni á þessu ári

Í febrúar lést 17 ára drengur á Miklubraut í umferðarslysi. Það sem af er árinu hafa 12 manns látist í umferðinni. Ljósmynd/Aðsend

Tólf manns hafa látist í umferðinni það sem af er ári í níu slysum, þar af a.m.k. þrír ferðamenn. Þetta er þriðja árið í röð þar sem fleiri en tíu látast í banaslysum, en yfir fimm ára tímabil, frá 2019 til 2023, hafði tekist að halda fjölda látinna í umferðinni undir 10.

Í gær varð banaslys á Snæfellsnesvegi við Kleifá, en þar lést ökumaður bifreiðarinnar eftir að bíllinn hafði hafnað á hvolfi ofan í Kleifá.

Þann 3. janúar lést sjötugur maður í umferðarslysi á Biskupstungnabraut þegar tveir bílar rákust saman við Þrastarlund.

Þann 5. febrúar lést 17 ára farþegi bifreiðar sem hafnaði á vegriði á Miklubraut. Ökumaðurinn slasaðist alvarlega.

Þann 16. júní lést ökumaður í slysi á Hálsasveitarvegi rétt við Reykholt þar sem tvær bifreiðar skullu saman. Var hinn látni ökumaður annarrar bifreiðarinnar.

Þann 20. júní lést ökumaður bifhjóls eftir að bifhjól og bifreið skullu saman við vegamót Kerlingardalsvegar. 55 ára gamall maður lést í slysinu.

Þann 26. júlí lést erlendur ferðamaður eftir að bifreið hans hafnaði utan vegar og valt við Litla-Sandfell á Þrengslavegi.

31. ágúst létust þrjú ungmenni eftir að bifreið þeirra hafnaði utan vegar. Voru þau á aldrinum 16 til 21 árs.

3. október létust tveir erlendir ferðamenn í fjögurra bíla árekstri við Háreksstaðakvísl á hringveginum. Voru ferðamennirnir báðir á sjötugsaldri.

16. október lést 47 ára karlmaður á Gæsavatnaleið þegar reynt var að losa jeppa sem fest hafði í krapa norðan Vatnajökuls. Ekki var um hefðbundið umferðarslys að ræða í merkingunni árekstur eða velta, en á vef Samgöngustofu hefur það verið flokkað með banaslysum í umferðinni.

Þann 8. nóvember lést sem fyrr segir einn í umferðarslysi á Snæfellsnesvegi við Kleifá. Hafnaði bíllinn utan vegar og ofan í ánni.


Þegar horft er til banaslysa frá árinu 2010 sést að banaslys síðustu þrjú árin hafa verið fleiri en 10 á ári. Eftir mikla slysaöldu á árunum 2015 til 2018 náðist að fækka banaslysum verulega og voru látnir í umferðinni árin 2019 til 2023 undir 10 á ári öll þessi ár. Síðan þá hefur þeim fjölgað og létust þrettán manns bæði árin 2024 og 2025. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅