Trump segist hafa verið að grínast

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa verið að grínast þegar hann bauð Dana White, yfirmanni bardagasamtakanna UFC, starf blaðafulltrúa Hvíta hússins.

Trump sagði við fjölmiðla í gær að White litist afar vel á hugmyndina en að boðið hefði aðeins verið sett fram í gamni.

Forsetinn hafði skrifað á samfélagsmiðil sinn Truth Social á laugardag að hann hefði boðið White starfið og hvatt hann til að taka því, að því er segir í umfjöllun BBC. 

„Dana verður blaðafulltrúi sem á sér engan líka,“ skrifaði Trump.

White sagði síðar sama dag að hann ætlaði að hitta forsetann í dag en vildi ekki segja hvort hann myndi þiggja starfið, sem er laust.

Trump sagði hins vegar við blaðamenn í gær að White myndi heimsækja hann í dag af „öðrum ástæðum“.

„Ég held að hann verði í Washington. Hann ætlar því að koma við hjá mér,“ sagði Trump.

„Ég skal segja ykkur að ég var bara að grínast. En Dana líst afar vel á hugmyndina. Og það er bara einn Dana. Hann er frábær.“

„En þetta var bara smá grín.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅