Rassskellingar bannaðar
Lisbet (Renate Reinsve) og Mihai Gheorghiu (Sebastian Stan) með börnin meðan allt leikur í lyndi. Mihai viðurkennir fyrir lögreglunni að hann rassskelli börnin þegar þau hegði sér illa, en þau Lisbet neita því að hafa nokkurn tímann beitt þau ofbeldi. Í kjölfarið ákveður barnaverndarnefnd að fjarlægja öll fimm börnin af heimilinu.
Því miður eru kvikmyndir í fullri lengd á leiðinni til andskotans,“ sagði Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri þegar hann var spurður, í viðtali við starfsmann Bíós Paradísar, hvað honum þætti um nýju kvikmyndina Fjörður, eða á norsku Fjord, eftir Cristian Mungiu.
Undirrituð getur ekki tekið undir þessi hörðu orð hans enda hefur þetta í heild verið mjög gott kvikmyndaár. Nýir, ungir leikstjórar hafa fengið tækifæri til að spreyta sig með frumlegum myndum á borð við Þráhyggju (e. Obsession) eftir Curry Barker og Bakherbergin (e. Backrooms) eftir Kane Rasons, og í fyrsta sinn frá covid hefur undirrituð séð ungt fólk flykkjast saman í bíó, en það er óhætt að segja að Z-kynslóðin haldi bíóhúsunum á lífi.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗