„Við viljum ekki allar tegundir“

Gagnaver sem sinna sérstaklega orkufrekum greftri rafmynta myndu til dæmis þurfa að víkja fyrir gagnaverum sem þjóna heilbrigðismálum, varnarmálum, fjarskiptum eða gervigreind. Mynd úr safni. AFP

Norsk stjórnvöld hyggjast taka upp leyfiskerfi fyrir gagnaver til að stýra uppbyggingu þeirra og veita þeim forgang sem skila samfélaginu mestum ávinningi. Þetta tilkynnti ríkisstjórnin í dag.

„Markmiðið er að ná betri stjórn á fjölgun gagnavera og tryggja að við fáum þau gagnaver sem við þurfum raunverulega á að halda,“ sagði Torgeir Micaelsen, ráðherra stafrænna málefna, á blaðamannafundi.

Gagnaver sem sinna sérstaklega orkufrekum greftri rafmynta myndu til dæmis þurfa að víkja fyrir gagnaverum sem þjóna heilbrigðismálum, varnarmálum, fjarskiptum eða gervigreind.

„Gagnaver eru hluti af mikilvægum innviðum okkar. Þau stuðla að verðmætasköpun, öruggri stafrænni þjónustu og auknu stafrænu sjálfstæði Noregs. En við viljum ekki allar tegundir gagnavera í Noregi,“ sagði Micaelsen.

„Við þurfum þau sem skila samfélaginu sem mestum ávinningi.“

Starfandi gagnaver þurfa einnig leyfi

Leyfiskerfið verður tekið upp eftir 1. ágúst 2027. Gagnaver sem þegar eru í rekstri þurfa einnig að sækja um leyfi og uppfylla kröfur kerfisins.

Samkvæmt upplýsingum frá Statnett, sem rekur raforkuflutningskerfi Noregs, hafa þegar verið samþykkt gagnaver með samtals 4.200 megavatta aflþörf. Það jafngildir um sjöttungi hámarksálags á norska raforkukerfið, sem er um 25.000 megavött.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅