Ný hetja í fjarveru Doncic
Austin Reaves skoraði 43 stig þegar Los Angeles Lakers vann Detroit Pistons 121:116 án Luka Dončić, sem var frá vegna stífleika í mjóbaki.
Reaves setti niður erfiða þriggja stiga körfu þegar 46 sekúndur voru eftir áður en hann innsiglaði sigurinn af vítalínunni.
Lakers vann sinn fimmta sigur í röð og er nú með níu sigra og tvö töp. Daniss Jenkins hjá Detroit skoraði 31 stig af bekknum en hann hefur aldrei skorað jafn mikið í einum leik.
Los Angeles Clippers batt enda á sjö leikja taphrinu með því að vinna New Orleans Pelicans 139:123. Darius Garland skoraði 24 stig og gaf tíu stoðsendingar.
Úrslit næturinnar:
Chicago Bulls 121:127 Philadelphia 76ers
Detroit Pistons 116:121 Los Angeles Lakers
Minnesota Timberwolves 115:100 Utah Jazz
Dallas Mavericks 130:93 Brooklyn Nets
Milwaukee Bucks 97:117 Boston Celtics
Los Angeles Clippers 139:123 New Orleans Pelicans
Sacramento Kings 108:114 Miami Heat
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗