Franskur júdókappi í forsetaframboð
Erlent | AFP | 9.11.2026 | 11:26 | Uppfært 11:46
Teddy Riner eftir að hafa tryggt sér gullverðlaunin á Ólympíuleikunum í París árið 2024. AFP/Jack Guez
Franski júdókappinn Teddy Riner, sem hefur fimm sinnum orðið ólympíumeistari, tilkynnti í dag að hann hygðist bjóða sig fram í forsetakosningunum í landinu á næsta ári.
„Ég heiti Teddy Riner og í dag segi ég ykkur augliti til auglitis: Ég er í framboði í forsetakosningunum 2027,“ sagði hinn 37 ára gamli íþróttamaður í óvæntri tilkynningu á samfélagsmiðlum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
