Myndband sem náðist um helgina vekur mikla furðu - Að taka svona ákvörðun getur verið stórhættulegt
Ný tíska meðal knattspyrnumanna hefur vakið mikla athygli en sífellt fleiri leikmenn nota örsmáa legghlífar í stað hefðbundinna hlífa.
Stjörnur á borð við Jack Grealish, Dominik Szoboszlai og Bukayo Saka hafa verið þekktar fyrir að nota litlar legghlífar.
Nú hefur myndband farið á flug þar sem leikmaður sést festa örsmáar hlífar á sköflunginn, sem líkjast helst litlum svampbútum.
Stuðningsmenn hafa gagnrýnt tískuna harðlega og telja leikmenn setja sig í óþarfa meiðslahættu.
„Þetta er orðið fáránlegt. Af hverju leyfa félögin verðmætustu leikmönnum sínum að spila án almennilegrar verndar?“ skrifaði einn stuðningsmaður.
Samkvæmt reglum enska knattspyrnusambandsins verða leikmenn að nota legghlífar sem veita hæfilega vernd, en bera sjálfir ábyrgð á stærð þeirra.
Rannsóknir hafa sýnt að meiðslum á neðri hluta fóta fækkaði um 20 prósent eftir að legghlífar urðu skyldubúnaður.
Virgil van Dijk hefur einnig gagnrýnt tískuna.
„Ef legghlífin þín er á stærð við AirPod-heyrnartól er það augljóslega stórt vandamál þegar þú færð spark í sköflunginn.“
This is getting ridiculous! @FA @premierleague @TheFACup The rules around shin pads needs to change. Why would anyone let their most expensive assets not wear shin pads? If they get injured due to a kick on the leg, I would fine them. https://t.co/E2hd6P8yqr
— Ash (@AshHarrison78) November 8, 2026
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗