Íslendingar treysta á að þetta reddist – Sláandi niðurstöður nýlegrar könnunar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur gefið út bæklinginn Verum viðbúin til að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins gegn óvæntum áföllum. Hafa sumir velt því fyrir sér hvort þörf sé á slíkum viðbúnaði á Íslandi. Að mati hugveitunnar Varðar er svarið klárlega já, en könnun þeirra á hamfaravitund landsmanna sýndi sláandi niðurstöður. Ragnar Hjálmarsson hjá Vörðu fer yfir málið í aðsendri grein hjá Vísi.
Það jákvæða sem könnunin sýndi er að Íslendingar treysta viðbragðsaðilum og stjórnvöldum einstaklega vel, en um 95 prósent treysta þeim til að bregðast rétt við hamförum, sem er hærra hlutfall en í Danmörku og Svíþjóð og vel yfir meðaltali Evrópusambandsins.
Ragnar skrifar: „Þetta traust hafa almannavarnir og björgunarsveitir landsins áunnið sér í hverju áfallinu á fætur öðru. En getur verið að traustið sé svo mikið að okkur finnist við lítið þurfa að gera sjálf?“
Aðeins 20,7 prósent Íslendinga eiga neyðarbirgðir af mat og drykk á móti 52% í Finnlandi, 44,8% í Svíþjóð og 32,6% að meðaltali í ESB. Innan við tíundi hver Íslendingur á birgðir af vatni til matseldar og hreinlætis. Ragnar telur könnunina sýna hið klassíska íslenska hugarfar: Að þetta reddist bara.
„Flest eigum við þó vasaljós eða kerti, um helmingur á sjúkrakassa og um fjórðungur útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum, sem er meira en að meðaltali í Evrópu. Vandi okkar birtist þegar hugsa þarf lengra fram í tímann. Algengasta svarið hér á landi er að fólk geti bjargað sér í tvo til þrjá daga ef rafmagn, vatn eða matvæladreifing bregst, og það svar er tíðara en í nágrannalöndum okkar. Aðeins 20,2% telja sig hins vegar eiga mat sem dugar í meira en viku, á móti 36,5–45,5% á öðrum Norðurlöndum. Enn færri segjast eiga vatn sem dugar svo lengi. Rafmagnsleysi virðumst við aftur á móti ráða betur við: 15,1% telja sig geta bjargað sér í meira en viku án rafmagns, á móti 6,3–12,1% á öðrum Norðurlöndum. Við gerum ráð fyrir að þetta reddist í tvo eða þrjá daga, sem er nokkuð íslenskt, en svo fer gamanið óhjákvæmilega að kárna.“
Ekki þurfi að leita langt eftir dæmum. Þúsundir heimila á Suðurnesjum voru án heits vatns um hávetur eftir að eldgos við Svartsengi rauf heitavatnslögn í febrúar 2024. Við slíkar aðstæður þurfi að forgangsraða og sinna fyrst þeim sem höllum fæti standa. Það geti létt álagi af viðbragðsaðilum ef fólk sé viðbúið til að sjá um sig og sýna.
Ragnar segir það koma á óvart hversu lítið landsmenn nýta sinn helsta styrk, fólkið í kringum sig. Könnunin sýndi að aðeins 39,9% landsmanna reiða sig á nágranna fyrstu daga eftir hamfarir en hlutfallið var 74,2-84,5% á hinum Norðurlöndunum. Aðeins 5,5% Íslendinga hafa rætt við fjölskyldu sína eða vini um hvernig þau geti náð sambandi hvert við annað ef fjarskipti rofna, sem er mun lægra hlutfall en annars staðar. Meðatalið í Evrópu er 20,2%.
„Við virkjum ennfremur nærsamfélagið milli heimilis og opinberra viðbragðsaðila – nágranna, vinnustaði, skóla og félagasamtök – mun minna en tíðkast annars staðar í Evrópu. Úr þessu er auðvelt að bæta. Það kostar ekkert að ræða við vini okkar, nágranna og starfsfélaga um hvernig við getum hjálpast að þegar á reynir.“
Úr þessu sé þó auðvelt að bæta. Bæklingurinn er góð byrjun og ekki þarf að kaupa allt í einu. Það skipti máli að koma upp birgðum en mikilvægara sé að setjast niður með sínum nánustu og skrifa áætlun niður á blað. Sænska almannavarnastofnunin hefur hannað heimilisæfingu sem kallast Sju dagar sem tekur eina kvöldstund.
Þar er fólki bent á að hugsa um hvað er til á heimilinu og hvað þurfi að gera í vikulöngu neyðarástandi. Ragnar rekur æfinguna ítarlega í grein sinni hér og hvetur hann landsmenn til að framkvæma hana sem fyrst.
„Við erum jú öll almannavarnir og í þeim anda hvet ég þig til að taka frá eitt kvöld á næstu dögum og gera heimilisáætlun. Næst þegar rafmagnið fer á köldu þriðjudagskvöldi hangir svarið við spurningunni „hvað gerum við?“ á ísskápnum. Þá reddast þetta af því að við erum búin að undirbúa okkur.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗