Geta ekki aukið vetrarþjónustuna

Eldisgarður Samherja er meðal fyrirtækja við Nesveg á Reykjanesi.

Vegagerðinni hefur borist erindi um að auka vetrarþjónustu á Nesvegi á Reykjanesi sem nú er takmörkuð við þrjá daga í viku.

Á svæðinu fer fram umsvifamikill rekstur og starfsemi nokkurra fyrirtækja, þar á meðal við byggingu á Eldisgarði Samherja innan Auðlindagarðs Reykjaness.

Í fundargerðum framkvæmdaráðs og atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar í síðasta mánuði kemur fram að fyrirtæki á svæðinu hafi lýst miklum áhyggjum af takmarkaðri vetrarþjónustu sem ekki fullnægi þeirri umferð, atvinnustarfsemi og öryggisþörf sem sé á svæðinu.

Í bókun umhverfis- og framkvæmdaráðs segir að skilgreina þurfi Nesveg sem stofnveg þannig að hann geti mætt vaxandi flutningsþörfum í takti við uppbyggingu atvinnustarfsemi og aukna umferð ferðamanna á Reykjanesinu.

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur jafnframt skorað á Vegagerðina og innviðaráðherra að endurmeta án tafar þjónustuflokkun Nesvegar og tryggja nægilegt fjármagn þannig að vetrarþjónusta sé veitt á Nesvegi alla daga þegar veður og færð kalla á.

Í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn blaðsins segir að heimildir hennar miðist við vetrarþjónustureglur sem gefnar séu út í Stjórnartíðindum, síðast árið 2018.

„Vegagerðin hefur því miður hvorki tök á né heimildir til þess að auka vetrarþjónustu umfram það sem fram kemur í þeim vetrarþjónustureglum sem unnið er eftir,“ segir í svari stofnunarinnar.

Tekið er fram að við hættu- eða neyðarstig á svæðinu breytist þjónustan hins vegar í sjö daga þjónustu.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅