Rekinn eftir rifrildi við yfirmanninn
Danska knattspyrnufélagið Sønderjyske rak þjálfarann Fatah Abdirahman eftir ágreining við íþróttastjórann Casper Daather um framtíðarstefnu félagsins, en ekki vegna úrslita, samkvæmt Campo.
„Við ákváðum að reka Fatah Abdirahman vegna þess að við vorum komnir á þann stað að við vorum ekki fyllilega sammála um hvert framtíðin ætti að leiða okkur,“ sagði Daather við TV 2 Sport.
„Ágreiningurinn kom upp á föstudaginn og því slitum við samstarfinu síðdegis á föstudag og sendum frá okkur fréttatilkynningu á föstudagskvöld.“ Hann vildi ekki útskýra deiluna nánar.
Abdirahman, sem er 34 ára, tók við sínu fyrsta starfi sem aðalþjálfari í meistaraflokki í sumar.
Sønderjyske situr enn á botninum eftir 2:2-jafntefli gegn FC Midtjylland á útivelli í gær undir stjórn aðstoðarþjálfarans Simon Poulsen.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗