Nvidia rannsakar tengsl Huangs við meintan njósnara

Stjórn tæknifyrirtækisins Nvidia hefur hafið óháða rannsókn eftir fréttir um að Jensen Huang, forstjóri og annar stofnenda fyrirtækisins, hafi verið skotmark kínverskrar leyniþjónustu.

Huang hefur viðurkennt að hafa átt í ástarsambandi við konu sem bandarískir embættismenn segja hafa starfað fyrir leyniþjónustuna. Kínversk stjórnvöld hafna ásökununum.

Bandaríska dagblaðið The New York Times greindi frá því undir lok síðasta mánaðar að bandarískir leyniþjónustumenn hefðu komist að þeirri niðurstöðu að Alice Huang, kínversk kona í stjórnunarstarfi sem tengist gagnaversfyrirtækinu Megaspeed í Singapúr, hefði miðlað upplýsingum til stjórnvalda í Peking.

Konan, sem einnig gengur undir nafninu Huang Le, myndaði náin tengsl við forstjóra Nvidia, að sögn blaðsins. Hún er ekki skyld hinum 63 ára gamla Jensen Huang, sem fæddist í Taívan.

Stjórn Nvidia tilkynnti um rannsóknina í gær. Huang viðurkenndi þá að hafa haldið fram hjá eiginkonu sinni.

„Ég var eiginkonu minni ótrúr,“ sagði hann í skilaboðum til starfsfólks fyrirtækisins. „Gjörðir mínar særðu hana og börnin okkar. Það er engin afsökun fyrir því sem ég gerði. Mér þykir það innilega leitt.“

Skjáskot úr myndskeiði CTI sýnir Alice Huang (fyrir miðju), kínverska konu í stjórnunarstarfi sem tengist gagnaversfyrirtækinu Megaspeed, í kvöldverðarboði Jensens Huangs, forstjóra og annars stofnenda Nvidia (til hægri, svartklæddur), á veitingastað í Taipei 22. maí 2025. AFP

Kínverjar hafna ásökunum

Huang er einn áhrifamesti maðurinn í gervigreindarbyltingunni og náinn, óformlegur ráðgjafi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Trump hefur ítrekað lagst gegn því að setja greininni reglur, á þeim forsendum að Kína megi ekki ná yfirhöndinni í kapphlaupinu á sviði gervigreindar.

Samkvæmt The New York Times gæti samband Alice Huang við forstjóra Nvidia hafa veitt henni innsýn í afstöðu Trumps til gervigreindarmála.

Guo Jiakun, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins, hafnaði njósnaásökununum á reglulegum blaðamannafundi í dag.

„Frásögnin um svokallaðan kínverskan njósnara er með öllu tilhæfulaus rógburður,“ sagði hann.

Verð á hlutabréfum Nvidia hafði lækkað um fimm prósent á þýska viðskiptavettvanginum Tradegate um klukkan 8.30 að íslenskum tíma í dag. Þá höfðu viðskipti ekki hafist í Nasdaq-kauphöllinni í New York, þar sem aðalskráning félagsins er.

Líklegt er að gervigreindarmál beri á góma í fyrirhuguðum viðræðum Trumps og Xi Jinping, forseta Kína, á leiðtogafundi í Kína síðar í mánuðinum.

„Maður veit aldrei hvað gengur á“

Trump var spurður í gær hvort Huang myndi slást í för með honum til Asíu. Í ferðinni hyggst forsetinn meðal annars sækja leiðtogafund Asíu- og Kyrrahafsríkja í kínversku borginni Shenzhen.

„Ég veit það ekki, en ég tek hann svo sannarlega með,“ sagði Trump við blaðamenn.

Hann sagði Huang vera „ágætis mann, en maður veit aldrei hvað gengur á. Ég er viss um — ég vona að allt sé í lagi. Hann hefur staðið sig ótrúlega vel.“

Nvidia sagði í yfirlýsingu að óháð rannsókn hefði verið hafin „í ljósi nýlegra frétta um að Jensen Huang, stofnandi og forstjóri, hafi verið skotmark erlendrar leyniþjónustu“.

„Þótt stjórnin hafi enga ástæðu til að ætla að þjóðaröryggi hafi verið stefnt í hættu eða leyndarmál Nvidia hafi komist í hendur óviðkomandi mun hún fara yfir allar tiltækar upplýsingar í rannsókn sinni,“ sagði jafnframt í yfirlýsingunni.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅