Verður sá fyrsti sem verður rekinn í ensku úrvalsdeildinni í ár

Pierre Sage, knattspyrnustjóri Crystal Palace, gæti orðið fyrsti stjórinn til að missa starfið í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Palace situr á botni deildarinnar eftir 3-1 tap gegn Liverpool á sunnudaginn og hefur aðeins unnið tvo af fyrstu tíu deildarleikjum sínum.

Samkvæmt Daily Mail er framtíð Sage í mikilli óvissu og Thomas Frank, fyrrverandi stjóri Tottenham, talinn líklegastur til að taka við liðinu.

Sean Dyche er einnig sagður koma til greina.

Sage, sem tók við Palace af Oliver Glasner í sumar, telur liðið hafa verið óheppið með úrslit og vonast til að forráðamenn félagsins sýni þolinmæði.

„Ég veit hversu mikilvægt það er fyrir félagið að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni,“ sagði Sage.

„Starfið mitt er ekki það mikilvægasta. Mikilvægast er að finna lausnir fyrir liðið.“

Frakkinn telur jafnframt nauðsynlegt að styrkja leikmannahópinn í janúar. „Félagið verður að hafa trú á þessu. Annars taka þeir ákvörðun,“ sagði Sage.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅