„Það þarf að búa til pressuna“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra vonast til þess að lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks bæti daglegt líf fatlaðs fólks og að hann verði til þess að fólk upplifi meira traust á kerfinu.
Þetta sagði forsætisráðherra á málþingi ÖBÍ réttindasamtaka í Hörpu í dag í tilefni af því að ár er liðið frá því að Alþingi lögfesti samninginn. Réttindin sem hann lýsir eru til að mynda jafnt aðgengi, bann við mismunun, þátttaka á eigin forsendum og krafa um viðeigandi aðlögun.
Setur pressu á stjórnvöld
Kristrún er stödd erlendis en svaraði spurningum frá ÖBÍ í vídeóávarpi. Hún var spurð hvaða þýðingu hún teldi lögfestinguna hafa haft fyrir íslenskt samfélag.
„Ég held að bara þetta eitt og sér, lögfestingin, hafi gert það að verkum að þetta lyftir umræðunni um málefni fatlaðs fólks. Þetta setur líka meiri pressu á okkur, stjórnvöld, að virða ákvæði samningsins og skapar umræðu um mikilvægi þess að réttindi fatlaðs fólks séu á þeim stað sem þau eiga að vera í dag, það er að allir séu jafnir,“ svaraði hún.
Þá var hún spurð hvernig hún meti viðhorf samfélagsins til aukinnar mannréttindaverndar fatlaðs fólks og sagðist fyrst og fremst hafa fundið fyrir ánægju og gleði í samfélaginu. Flestir kannist við umræðu um kostnað en viðhorfið hafi að hennar mati breyst gífurlega og fólk sé almennt mjög jákvætt fyrir lögfestingu samningsins.
„Þannig að ég held að þetta hafi verið mjög jákvæð þróun hvað það varðar. Auðvitað þarf hins vegar alltaf að halda þessari baráttu gangandi og þarna treysti ég á ykkur og þið getið treyst á okkur líka í ríkisstjórninni.“
Ríki og sveitarfélög geta unnið betur saman
Þá var Kristrún spurð álits á því sem hagsmunasamtök fatlaðs fólks hafa talað um, að ágreiningur á milli ríkis og sveitarfélaga um fjármögnun komi oft í veg fyrir að fatlað fólk fái þau úrræði sem það þarf og á rétt á. Var hún spurð hvort hún tæki undir það og hvað væri þá til ráða.
„Þessi umræða er alltaf til staðar. Ég held að það sé alveg ýmislegt til í því. Ég hef sjálf haft orð á því að ríki og sveitarfélög þurfi að vinna betur saman og þau geta sannarlega gert það. Við höfum leyst mál t.d. á undanförnum mánuðum og frá því að við komum í ríkisstjórn á sviði hjúkrunarheimila, við stigum inn í þegar kemur að börnum með fjölþættan vanda þó að það þurfi að gera meira þar,“ sagði ráðherrann.
„En þetta er aldrei nein afsökun og ef við ætlum alltaf að vera búin að útkljá öll mál á sviði ríkis og sveitarfélaga eða öll smáatriði í ákveðnum málaflokkum áður en við förum í, t.d. eins og í þessu tilviki að lögfesta þessi réttindi og þennan samning, þá myndi aldrei neitt gerast. Stundum þarf að stíga skrefið, það þarf að búa til pressuna og það skapar umhverfi til þess að leita lausna. Þannig að ég er bara jákvæð fyrir samstarfinu áfram með sveitarfélögunum og ég held að þetta gefi okkur aukna hvatningu til að leysa mál.“
„Þetta er málefni sem skiptir okkur öll máli“
Kristrún var einnig spurð hvað hún vildi geta sagt að hefði breyst ef hún yrði spurð á fimm ára afmæli lögfestingar samningsins.
„Ég myndi vilja segja að þessi áfangi, þessi lögfesting, hafi haft raunveruleg áhrif á að bæta daglegt líf fatlaðs fólks og raunar bara alls fólks sem býr á Íslandi vegna þess að það eru fjölskyldur og vinir og samfélög í tengslum við Íslendinga sem búa við einhvers konar fötlun þannig að þetta er málefni sem skiptir okkur öll máli,“ svaraði hún.
„Ég vona líka að þetta verði til þess að fólk upplifi meira traust og trú, fyrirsjáanleika og öryggi þegar kemur að kerfinu vegna þess að það er gríðarlega mikilvægt og ég finn alveg fyrir því að fólk er stöðugt að reyna að ýta undir það, og skil það mjög vel að fólk hafi stundum átt erfitt með að berjast við kerfið. Þess vegna vona ég að þetta sé skref í rétta átt.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗