Breyta vinsælu morgunkorni
Erlent | mbl | 9.11.2026 | 10:26
Kellogg’s er búið að fjarlægja hrísgrjón úr Rice Krispies og Coco Pops morgunkorninu á Evrópumörkuðum vegna „breyttra veðurskilyrða“.
Í dag er hrísgrjónamjöl notað í stað hrísgrjóna í uppskrift Rice Krispies. Coco Pops inniheldur nú blöndu af hrísgrjónamjöli og maísmjöli í stað hrísgrjóna.
Talsmaður Kellogg’s sagði að breytingin endurspeglaði hvernig loftslagsváin hefði haft áhrif á gæði og framboð sumra hrísgrjóna og korntegunda sem notaðar eru í vinsælasta morgunkorni fyrirtækisins, að því er segir í umfjöllun Guardian.
„Það á eftir að smella og snarka, en kannski ekki lengur poppa,“ segir í umfjöllun miðilsins og vísar þar í frægt slagorð Rice Krispies.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗