Inga Lind fagnaði með Birnu Önnu
Rithöfundurinn Birna Anna Björnsdóttir bauð í teiti í bókabúð Pennans Eymundsson í síðustu viku. Teitið var haldið í tilefni af útkomu fyrstu glæpasögu hennar Hótel Héðinsfjörður.
Inga Lind Karlsdóttir framleiðandi og sjónvarpskona mætti í boðið en það gerði líka Ásthildur Sturludóttir fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri, Brynhildur Einarsdóttir framhaldsskólakennari, Birna Ósk Einarsdóttir forstjóri Húsasmiðjunnar, Lára Björg Björnsdóttir systir Birnu Önnu og verkefnastjóri í Háskólanum í Reykjavík, Silja Hauksdóttir kvikmyndaframleiðandi, Dýri Jónsson leikstjóri, Bergþóra Magnúsdóttir grafískur hönnuður, Eggert Benedikt Guðmundsson forstjóri Hafrannsóknarstofnunar og Jóhanna Þórsdóttir markaðsstjóri Fjallsárlóns.
Í bókinni segir frá vinkvennahóp sem mætir á gönguskíðanámskeið á glænýtt lúxushótel í Héðinsfirði, þar sem enginn býr. Hótelið er í eigu einnar úr hópnum, hinnar dularfullu Herdísar Karlsdóttur, uppgangskonu sem hefur auðgast mjög í tæknigeiranum. Fljótlega kemur á daginn að gamlar væringar krauma enn undir og á þriðja degi finnst ein úr hópnum myrt. Í bókinni skrifar Birna Anna um vináttu, öfund, afbrýði og fortíðardrauga.
Birna Anna varð þekkt í bókaheiminum þegar hún skrifaði bókina Dís ásamt Oddnýju Sturludóttur og Silju Hauksdóttur. Dís varð metsölubók og síðar einnig að kvikmynd.
Kristinn Valtýsson, Hjörtur Reynir Hjartarson, Halla Hjartardóttir og Solveig Lára Guðmundsdóttir. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Systurnar Lára Björg Björnsdóttir og Birna Anna Björnsdóttir með föður sínum, Birni Ragnarssyni. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Lára Björg Björnsdóttir, Edda Hermanssdóttir, Björgvin Guðmundsson og Birna Anna Björnsdóttir. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Kristinn Ingvarsson, Anna Elísabet Kristinsdóttir, Birna Ósk Einarsdóttir og Edda Hermannsdóttir. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Solveig Lára Guðmundóttir, Heiður Reynisdóttir, Þórunn Dúa Kristinsdóttir og Ólöf Ásta Ólafsdóttir. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Jóhanna Þormóðsdóttir, Ásta Margrét Karlsson, Karl Ragnarsson, Björn Ragnarsson og Birna Anna Björnsdóttir. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Pétur Már Ólafsson útgefandi hjá Bjarti & Veröld, Birna Anna Björnsdóttir rithöfundur og Páll Valsson útgáfustjóri hjá Bjarti & Veröld. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Ásthildur Sturludóttir, Margrét Einarsdóttir, Tinna Traustadóttir, Birna Anna Björnsdóttir, Arna Hauksdóttir, Brynhildur Einarsdóttir, Guðríður Sigurðardóttir, Guðrún Inga Ingólfsdóttir, Hulda Þórisdóttir og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Brynhildur Einarsdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Ásthildur Sturludóttir. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Guðríður Sigurðardóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Hulda Þórisdóttir, Tinna Traustadóttir og Ásthlidur Sturludóttir. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗





































