Ekkert sjálfsagt þegar þú ert kominn á þennan aldur
Bjarki Már Elísson fór mikinn fyrir íslenska landsliðið í handbolta þegar liðið vann öruggan sigur gegn Eistlandi í þriðja riðli undankeppni Evrópumótsins í Tallinn í Eistlandi í gær.
Leiknum lauk með 13 marka sigri Íslands, 39:26, en Ísland er með fjögur stig, eða fullt hús stiga, í efsta sæti riðilsins líkt og Serbía.
Bjarki Már skoraði fyrsta mark leiksins eftir mínútu leik en hann fór á kostum fyrir íslenska liðið í fyrri hálfleik og skoraði tíu mörk.
„Þetta var verkefni sem við þurftum að leysa og við gerðum það fagmannlega,“ sagði Bjarki Már í samtali við Morgunblaðið.
„Við hefðum getað gert þetta betur en við göngum sáttir frá þessum landsleikjaglugga. Við fórum illa með nokkur góð færi í upphafi leiks og það var fínt að fá þetta leikhlé sem Eistarnir tóku. Við skerptum aðeins á ákveðnum hlutum í varnarleiknum en það var aldrei neitt stress. Snorri [Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari] sagði okkur bara að halda áfram með smjörið og við vissum að ef við myndum halda áfram að skapa okkur góð færi myndi þetta enda á þann veg sem það gerði,“ sagði Bjarki Már.
Sigur íslenska liðsins var aldrei í hættu og var stærsta spurningin hversu stór hann yrði.
„Eins og ég sagði áðan þá var þetta mjög fagmannleg frammistaða. Alveg frá því að Snorri tók við liðinu höfum við verið mjög stöðugir í þessum undankeppnum. Við höfum í raun alltaf mætt klárir og tilbúnir í slaginn, sama á móti hverjum við erum að spila.
Þegar gæðamunurinn á liðunum er þetta mikill, með fullri virðingu fyrir eistneska liðinu, er mikilvægast að byggja upp gott forskot í fyrri hálfleik og sigla sigrinum svo heim í þeim síðari. Mér finnst við hafa gert það mjög vel í síðustu leikjum okkar í þessum undankeppnum.“
Alltaf jafn gaman
Er erfitt að gíra sig upp í þessa leiki þar sem þið eruð og eigið að vera miklu sterkari aðilinn?
„Það getur alveg verið það, fyrir einhverja í það minnsta, en ef ég tala bara fyrir sjálfan mig þá finnst mér það ekki. Ég er kominn á þann aldur að maður tekur engum landsleik sem sjálfsögðum hlut. Mér finnst alltaf jafn gaman að klæðast íslensku treyjunni og það skiptir mig engu máli hvar ég er að spila eða á móti hverjum.
Það er samt þannig að það þarf kannski aðeins meira til en þegar þú ert að spila á móti stórþjóð í handboltanum en það er ekkert vandamál. Við erum búnir að spila nokkra svona leiki síðustu árin sem hafa gengið mjög vel og það sem hefur skipt mestu máli er að við erum klárir strax frá fyrstu mínútu og höfum þannig náð að drepa leikina.“
Eins og áður sagði skoraði Bjarki Már tíu mörk í fyrri hálfleik en Orri Freyr Þorkelsson leysti hann af hólmi í síðari hálfleik.
Var ekkert svekkjandi að fá ekki að klára seinni hálfleikinn eftir frábæra frammistöðu í þeim fyrri?
„Nei, nei, ekkert þannig. Auðvitað hefði verið gaman að klára leikinn en ég veit hvernig þetta virkar í þessum undankeppnum. Við erum með það mikla breidd að það skiptir máli fyrir liðið að allir fái mínútur. Við höfum rúllað vel á liðinu í gegnum tíðina og þetta kom mér ekki á óvart þannig að ég er ekki að svekkja mig á því.“
Vonar það besta
Fram undan er heimsmeistaramótið í Þýskalandi sem hefst í janúar á næsta ári en Ísland leikur tvo vináttulandsleiki gegn Kúveit í aðdraganda heimsmeistaramótsins í janúar.
„Það er alltaf spenna í manni fyrir þessi stórmót en það á eftir að velja hópinn. Ég beið fram í miðjan desember í fyrra áður en ég fékk að vita að ég yrði í hópnum þannig að maður veit aldrei í þessu. Markmiðið í þessum landsleikjaglugga var að sanna það fyrir landsliðsþjálfaranum að ég ætti heima í HM-hópnum og gefa honum smá hausverk. Að því sögðu þá vonar maður bara það besta,“ bætti Bjarki Már við í samtali við Morgunblaðið.
Greinina má sjá í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗