Fetar í fótspor föður síns

Feðgarnir Tiger og Charlie Woods. Charlie fetar nú í fótspor föður síns á golfvellinum og mun leika fyrir golflið Florida State-háskólans. Samsett mynd//AFP/Tim Heitman

Charlie Woods, 17 ára sonur golfstjörnunnar Tigers Woods, fetar í fótspor föður síns á golfvellinum. Hann hefur nú staðfest að hann muni leika fyrir golflið Florida State-háskólans og fögnuðu foreldrar hans þessum tímamótum með honum um helgina.

Athöfnin fór fram í Benjamin-skólanum í Palm Beach Gardens í Flórída, þar sem Charlie stundar nám. Bæði Tiger og fyrrverandi eiginkona hans, sænska fyrirsætan Elin Nordegren, voru viðstödd.

Charlie greindi frá því á Instagram í febrúar að hann hefði ákveðið að leika fyrir golflið skólans. Tiger óskaði syni sínum þá til hamingju í athugasemd við færsluna og sagðist afar stoltur af honum.

Hefur þegar unnið mót

Charlie hefur þegar látið að sér kveða í unglingagolfinu. Hann sigraði á Team TaylorMade Invitational-mótinu í maí í fyrra og átti fyrr í þessum mánuði þátt í að tryggja skólaliði sínu sigur á svæðismóti í Flórída.

Þótt hann feti í fótspor föður síns í íþróttinni varð annar háskóli fyrir valinu. Tiger lék fyrir Stanford-háskólann í tvö ár áður en hann gerðist atvinnumaður.

Foreldrar Charlies skildu árið 2010 og eiga einnig dótturina Sam.

Tiger Woods og Elin Nordegren árið 2008 þegar allt lék í lyndi. AFP/Shaun Best

Page Six

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅