SKIMS jóladagatal Kim Kardashian sagt vera rusl og algjört okur: „Tilefni til málsóknar“

Kim Kardashian sætir nú harðri gagnrýni á netinu vegna jóladagatals sem hún sendi frá sér undir vörumerki sínu SKIMS.

Notendur samfélagsmiðla hafa kallað aðventutalið, sem inniheldur fylgihluti og kostar 148 dali (rúmar 18 þúsund krónur) „rusl“í kjölfar TikTok-myndbands þar sem kona opnaði 12 gluggana á dagatalinu. Dagatallið var hins vegar afar eftirsótt, er uppselt og kominn biðlisti eftir næstu sendingu.

Í myndbandinu, sem hefur farið í mikla dreifingu og yfir 63 milljónir áhorfa verður viðkomandi sífellt pirraðri eftir því sem á myndbandið líður. Í dagatalinu eru lyklakippur með SKIMS-merkingum, hárteygjur úr silki, hárspennur, mjúkt dót (e. squishy) frá SKIMS og jólaskraut.

„Kimberly, þú ert virkilega að fara að gera mig brjálaða,“ segir konan í myndbandinu. „Þetta er allt of dýrt.“

Aðrir tóku undir með henni í athugasemdakerfinu, en einn notandi á samfélagsmiðlum gekk svo langt að segja að aðventutalið „ætti að vera tilefni til málsóknar og ég er ekki að grínast.“

Annar var æfur og sagði: „150 dollarar er GEÐVEIK upphæð fyrir dót sem er kannski 20 dollara virði,“ en sá þriðji bætti við að hlutirnir væru „í raun bara allt það sem dettur niður á milli sætanna í bílnum mínum.“

Einhver sagði að þetta liti út eins og verið væri að „tæma náttborðið hennar Kim,“ annar skrifaði: „Þær voru að gera grín að þér, stelpa, en þú sparaðir mörgum öðrum peninga,“ og sá þriðji kallaði hlutina „rusl frá Temu.“

Fulltrúi Kardashian sagði við Page Six: „Við erum meðvituð um þær athugasemdir sem sumir viðskiptavinir hafa sett fram varðandi aðventutalatal SKIMS og við höfum hlustað á gagnrýnina Við skiljum að fyrir suma stóð dagatalið ekki undir væntingum. Við höfum haft samband við hvern einasta viðskiptavin sem keypti dagatalið og boðið þeim val um að fá fulla endurgreiðslu eða inneign hjá SKIMS sem hægt er að nota til kaupa á öðrum vörum.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Kardashian kemur af stað umræðum á netinu vegna vörumerkisins SKIMS, sem hún setti á markað árið 2019.

Á síðasta ári vakti vörumerkið mikla athygli þegar það kynnti línuna Ultimate Bush. Hún innihélt strengnærbuxur þar sem fest hafði verið gervihár, í ýmsum áferðum og litbrigðum, að framanverðu. Einn notandi á samfélagsmiðlum grínaðist með að hann væri að „hringja í neyðarlínuna“, á meðan annar skrifaði: „Ég gúgglaði dagsetninguna til að ganga úr skugga um að þetta væri ekki 1. apríl.“

Árið 2024 sætti raunveruleikastjarnan einnig harðri gagnrýni fyrir að gera gys að trúarbrögðum, eftir að hafa setið fyrir hálfnakin með rosary hálsmen í tengslum við samstarf SKIMS og Dolce & Gabbana.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅