Segir erlenda brotamenn hafa fengið afslátt af refsingum sínum – Vísar til manns sem nú ógnar Íslendingum
Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, gagnrýnir harðlega lagabreytingu sem gerði kleift að veita erlendum föngum reynslulausn fyrr en ella.
Hún segir brotamenn, þar á meðal menn sem dæmdir hafa verið fyrir mjög alvarlega glæpi, hafa fengið verulegan afslátt af refsingum sínum. Þá sakar hún dómsmálaráðherra um að gefa ranga mynd af tilgangi lagabreytingarinnar.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Sigríðar í Morgunblaðinu í dag þar sem hún svarar Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra, sem hefur bent á árangur stjórnvalda við brottvísun erlendra brotamanna.
Lagabreytingin var samþykkt á Alþingi í júní síðastliðnum og heimilaði að erlendum föngum, sem ákveðið hafði verið að vísa úr landi, yrði veitt reynslulausn þegar þeir hefðu afplánað þriðjung refsitímans í stað helmings. Tilgangurinn var meðal annars að létta á yfirfullum fangelsum landsins.
„Þeim var hreinlega sleppt fyrr út“
Sigríður segir Miðflokkinn hafa lagst gegn breytingunni vegna þess að hún fæli í sér mismunun milli íslenskra og erlendra fanga og kynni að ganga gegn jafnræðissjónarmiðum.
Hún gagnrýnir sérstaklega málflutning dómsmálaráðherra, sem hefur vísað til þess að 40 brotamönnum hafi verið vísað úr landi eftir afplánun.
„Þeir brotamenn sem um ræðir hafa alls ekki lokið afplánun dóma sem þeir hlutu. Þeim var hreinlega sleppt fyrr út með þessari lagabreytingu sem ráðherrann ber ábyrgð á,“ skrifar Sigríður.
Hún bendir á að heimildir til að vísa erlendum brotamönnum úr landi hafi þegar verið til staðar í íslenskum lögum. Breytingin hafi fyrst og fremst falist í því að heimila þeim að yfirgefa fangelsi fyrr en áður, en ekki að veita stjórnvöldum nýjar almennar heimildir til brottvísunar.
Ógnar Íslendingum
Sigríður vísar jafnframt til nýlegra frétta af manni sem hafi notið góðs af lagabreytingunni og verið sendur úr landi.
„Ef marka má nýlegar fréttir þá situr einn þeirra núna heima hjá sér og ógnar Íslendingum og íslenskum hagsmunum, í góðu skjóli fyrir íslenskri réttvísi,“ segir Sigríður sem vísar til frétta af Mohamed Kourani sem mun hafa staðið á bak við sprengjuhótanir sem hafa borist opinberum stofnunum, leikskólum og fyrirtækjum undanfarna daga.
Sigríður segir að meðal þeirra sem hafi getað notið lagabreytingarinnar séu menn sem sakfelldir hafi verið fyrir einhver alvarlegustu brot hegningarlaga, auk brotamanna sem starfi á vegum skipulagðra glæpahópa.
Segir skilaboðin röng
Í grein sinni segir Sigríður að Miðflokkurinn hefði hugsanlega getað stutt lagabreytingu sem fæli í sér víðtækari heimildir til brottvísunar erlendra brotamanna. Það hafi hins vegar ekki verið inntak þessarar breytingar.
Hún telur að stjórnvöld ættu frekar að beina sjónum sínum að því að koma í veg fyrir að erlendir brotamenn sæki til Íslands í þeim tilgangi að fremja afbrot.
„Skilaboð um vægari refsingar til handa erlendum brotamönnum gagnast ekki í þeim efnum,“ segir Sigríður að lokum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗