Óskar gagnrýnir ákvörðunina á Akureyri harðlega – „Konurnar féllu á skrifstofu“

Óskar Ófeigur Jónsson, blaðamaður Vísis, gagnrýnir KA harðlega í pistli vegna ákvörðunar félagsins um að slíta samstarfinu við Þór um rekstur kvennaliðsins Þórs/KA.

Óskar segir ákvörðunina hafa komið verulega á óvart, ekki síst vegna þess hvernig staðið var að henni.

„Á endanum voru það bæði KA-liðin sem féllu úr Bestu deildinni í ár, karlarnir féllu inni á vellinum en konurnar á skrifstofu knattspyrnudeildarinnar,“ skrifar Óskar.

Hann gagnrýnir sérstaklega að leikmenn Þórs/KA hafi þurft að lesa um ákvörðunina í fjölmiðlum.

Óskar vísar meðal annars til orða Söndru Maríu Jessen, landsliðskonu og lykilleikmanns Þórs/KA, sem hefur lýst yfir miklum vonbrigðum og áhyggjum af framtíð kvennaknattspyrnunnar á Akureyri.

Í pistlinum veltir Óskar því jafnframt upp hvort vonbrigði KA með fall karlaliðsins hafi haft áhrif á ákvörðunina, þótt hann taki skýrt fram að hann vilji ekki trúa slíkum vangaveltum.

Hann segir mikla eftirsjá að hinu sigursæla samstarfi, enda hafi Þór/KA verið eitt af sterkustu félögum íslenskrar kvennaknattspyrnu undanfarna áratugi.

Að lokum veltir Óskar því fyrir sér hvort flestir leikmenn muni velja að halda áfram með Þór í Bestu deildinni fremur en að leika með KA í

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅