Ökumaður bifreiðarinnar er látinn

Slysið varð við Kleifá á Snæfellsnesi.

Slysið varð við Kleifá á Snæfellsnesi. mbl.is/Karítas

Ökumaður bifreiðarinnar sem hafnaði út af Snæfellsnesvegi við Kleifá í gærmorgun og var fluttur með þyrlu á Landspítalann er látinn.

Fram kemur í tilkynningu að nokkru eftir að hann hafi verið fluttur með þyrlunni á spítalann hafi hann verið úrskurðaður látinn.

Meiðsli farþegans sem komst út úr bifreiðinni af sjálfsdáðum, og var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítalann, eru talin minni háttar en bifreiðin sem ferðamennirnir voru í hafnaði á hvolfi í Kleifá. 

Bifreiðin hafnaði á hvolfi í Kleifá.

Bifreiðin hafnaði á hvolfi í Kleifá. Kort/mbl.is

Að sögn Jónasar Hallgríms Ottóssonar, yfirlögregluþjóns lögreglunnar á Vesturlandi, urðu engin vitni að slysinu.

Rannsókn stendur yfir á tildrögum þess en aðstæður voru góðar þegar slysið varð, bæði þurrt og hlýtt.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅