Fimmtán manna hópur Íslands klár
Craig Pedersen, landsliðsþjálfari karla í körfubolta, hefur valið 15 manna æfingahóp fyrir leikina gegn Bosníu og Tyrklandi í undankeppni HM 2027 síðar í þessum mánuði.
Ísland tekur á móti Bosníu í Laugardalshöll fimmtudaginn 26. nóvember klukkan 19.30 og mætir síðan Tyrklandi í Istanbúl sunnudaginn 29. nóvember klukkan 16.
Liðið kemur saman sunnudaginn 22. nóvember og æfir hér heima fram að leiknum gegn Bosníu. Daginn eftir leikinn heldur hópurinn til Tyrklands.
Ægir Þór Steinarsson er leikjahæstur í hópnum með 105 landsleiki. Elvar Már Friðriksson og Martin Hermannsson koma næstir með 93 leiki hvor.
Hópur Íslands:
Bjarni Guðmann Jónsson, Stjarnan, 10 landsleikir
Bragi Guðmundsson, Keflavík, 4 landsleikir
Elvar Már Friðriksson, Neptunas Klaipeda, 93 landsleikir
Haukur Helgi Pálsson, Álftanes, 85 landsleikir
Hilmar Smári Henningsson, Stjarnan, 39 landsleikir
Jón Axel Guðmundsson, Gran Canaria, 53 landsleikir
Kári Jónsson, Valur, 50 landsleikir
Kristinn Pálsson, HLA Alicante, 54 landsleikir
Martin Hermannsson, Alba Berlin, 93 landsleikir
Ragnar Ágústsson, Tindastóll, 2 landsleikir
Sigurður Pétursson, Álftanes, 8 landsleikir
Styrmir Snær Þrastarson, Rapid Bucuresti, 39 landsleikir
Tryggvi Snær Hlinason, Bilbao Basket, 88 landsleikir
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, KR, 36 landsleikir
Ægir Þór Steinarsson, Stjarnan, 105 landsleikir
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗