Óhugnanlegt atvik í Noregi - Einn á sjúkrahúsi eftir að stúkan gaf sig

Óhugnanlegt atvik átti sér stað í leik Tromsø og Bodø/Glimt í norsku úrvalsdeildinni á sunnudag þegar hluti af áhorfendastúku gaf sig.

Allt að fimm stuðningsmenn Bodø/Glimt féllu í gegnum gólf stúkunnar þegar þeir hoppuðu og sungu stuðningsmannasöngva.

Nikita Haikin, markvörður Bodø/Glimt, vakti athygli dómarans á atvikinu og var leikurinn stöðvaður skömmu fyrir hálfleik.

Einn stuðningsmaður var fluttur á sjúkrahús en aðrir voru færðir á öruggari staði á vellinum.

„Við vorum að hoppa og syngja þegar gólfið gaf sig,“ sagði stuðningsmaðurinn Andrine Moen við norska fjölmiðla.

Leikurinn hélt áfram eftir hléið og Bodø/Glimt tryggði sér 2-0 sigur með tveimur mörkum frá Ola Brynhildsen.

Bodø/Glimt er á toppi norsku úrvalsdeildarinnar og berst við Viking um meistaratitilinn.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅