Bíllinn gerður upptækur eftir ítrekuð brot
Maðurinn hefur ítrekað hlotið refsingu fyrir akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Ljósmynd/Colourbox
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í sjö mánaða fangelsi fyrir að aka fjórum sinnum undir áhrifum amfetamíns og sviptur ökurétti.
Bifreið hans var jafnframt gerð upptæk til ríkissjóðs og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.
Maðurinn játaði brot sín skýlaust. Þau voru framin í Reykjavík á tímabilinu frá nóvember 2025 til maí á þessu ári. Dómurinn var kveðinn upp í síðustu viku.
Stöðvaður fjórum sinnum
Lögregla stöðvaði manninn við akstur á Hringbraut 15. nóvember 2025 og aftur á Sæbraut ellefu dögum síðar. Í bæði skiptin var hann sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa amfetamíns.
Hinn 4. apríl á þessu ári ók hann um Njarðargötu og Smáragötu, sviptur ökurétti og undir áhrifum amfetamíns. Fjórða brotið var framið 10. maí þegar lögregla stöðvaði akstur hans um Njarðargötu og Laufásveg. Var hann þá enn sviptur ökurétti og undir áhrifum sama efnis. Lögregla lagði hald á bifreið hans í kjölfarið.
Ítrekuð brot að baki
Maðurinn hefur ítrekað hlotið refsingu fyrir akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Hann var sviptur ökurétti ævilangt með dómi í október 2023. Í janúar á þessu ári var hann enn dæmdur fyrir akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna.
Tvö fyrstu brotin í þessu máli voru framin áður en dómurinn féll í janúar. Refsing fyrir þau var því ákveðin sem hegningarauki við þann dóm.
Við ákvörðun refsingar lagði dómurinn til grundvallar að maðurinn hefði nú í fimmta sinn gerst sekur um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna eftir átján ára aldur og innan lögbundins ítrekunartíma. Jafnframt hefði hann nú í annað sinn gerst sekur um akstur sviptur ökurétti.
Skýlaus játning mannsins var metin honum til málsbóta. Dómurinn taldi sjö mánaða fangelsi hæfilega refsingu og ekki efni til að skilorðsbinda hana.
Vegna ítrekaðra brota mannsins var fallist á kröfu ákæruvaldsins um að bifreiðin yrði gerð upptæk. Honum var einnig gert að greiða samtals 861.086 krónur í málsvarnarþóknun verjanda síns og annan sakarkostnað.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗