Ökumaður bifreiðarinnar er látinn
Ökumaður bifreiðarinnar sem hafnaði út af Snæfellsnesvegi við Kleifá í gærmorgun og var fluttur með þyrlu á Landspítalann er látinn.
Fram kemur í tilkynningu að nokkru eftir að hann hafi verið fluttur með þyrlunni á spítalann hafi hann verið úrskurðaður látinn.
Meiðsli farþegans sem komst út úr bifreiðinni af sjálfsdáðum, og var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítalann, eru talin minni háttar en bifreiðin sem ferðamennirnir voru í hafnaði á hvolfi í Kleifá.
Að sögn Jónasar Hallgríms Ottóssonar, yfirlögregluþjóns lögreglunnar á Vesturlandi, urðu engin vitni að slysinu.
Rannsókn stendur yfir á tildrögum þess en aðstæður voru góðar þegar slysið varð, bæði þurrt og hlýtt.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
