Forstjóri eins verðmætasta fyrirtækis heims í miðju njósnahneyksli – Þetta er vitað um málið

Bandaríski tæknirisinn Nvidia hefur hafið sjálfstæða rannsókn á því hvort forstjóri fyrirtækisins, Jensen Huang, hafi verið skotmark erlendra njósnara. Rannsóknin kemur í kjölfar frétta um ástarsamband hans við kínverska viðskiptakonu sem bandarískar leyniþjónustustofnanir eru sagðar gruna um að hafa starfað fyrir kínversk stjórnvöld.

Málið hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum og áhyggjur meðal bandarískra þingmanna af því hvort viðkvæmar upplýsingar um háþróaða gervigreindartækni hafi komist í rangar hendur.

Huang, sem er einn áhrifamesti maður tækniheimsins, viðurkenndi í yfirlýsingu á sunnudag að hafa haldið fram hjá eiginkonu sinni. „Það er engin afsökun fyrir því sem ég gerði,“ sagði Huang.

BBC greinir ítarlega frá málinu, sem hefur einnig valdið óróa á fjármálamörkuðum.

Grunuð um njósnir fyrir Kína

Konan sem um ræðir heitir Alice Huang, einnig þekkt sem Huang Le, og hefur gegnt stjórnunarstöðu hjá gagnaverafyrirtækinu Megaspeed í Singapúr.

Bandaríska stórblaðið New York Times greindi frá sambandi þeirra í síðasta mánuði. Samkvæmt ónafngreindum heimildum blaðsins höfðu bandarískar leyniþjónustustofnanir fylgst með Alice Huang og komist að þeirri niðurstöðu að hún starfaði í þágu kínverskra stjórnvalda.

Við eftirlitið hafi komið í ljós samskipti hennar við bandarískan ríkisborgara sem síðar reyndist vera Jensen Huang.

Ekki hefur verið staðfest að Alice Huang hafi stundað njósnir og kínversk stjórnvöld hafa alfarið hafnað ásökununum. Reuters hefur sömuleiðis tekið fram að fréttastofan hafi ekki getað staðfest þær með sjálfstæðum hætti.

Keypti tölvukubba fyrir milljarða dollara

Málið þykir sérstaklega viðkvæmt vegna tengsla Alice Huang við Megaspeed, sem hefur verið til rannsóknar vegna gruns um að hafa aðstoðað kínversk fyrirtæki við að komast yfir háþróaða tölvukubba frá Nvidia þrátt fyrir bandarískar útflutningstakmarkanir.

Samkvæmt BBC hefur Megaspeed keypt tölvukubba frá Nvidia fyrir um 4,8 milljarða Bandaríkjadala á síðustu tveimur árum og er þar með einn stærsti viðskiptavinur fyrirtækisins í Suðaustur-Asíu.

Bandarísk stjórnvöld hafa frá árinu 2022 takmarkað útflutning á öflugustu tölvukubbum Nvidia til Kína af ótta við að tæknin geti nýst kínverska hernum.

Nvidia segist ekki hafa fengið upplýsingar frá bandarískum stjórnvöldum um grunsemdir leyniþjónustustofnana vegna Megaspeed. Fyrirtækið viðurkennir þó að hafa vitað af fyrri rannsókn á mögulegum brotum Megaspeed á útflutningsreglum, en heldur því fram að þær ásakanir hafi verið rannsakaðar og hraktar.

Trump vissi af málinu

Samkvæmt New York Times var Donald Trump Bandaríkjaforseta greint frá því á síðasta ári að bandarískar leyniþjónustustofnanir hefðu Alice Huang undir eftirliti og grunuðu hana um tengsl við kínversk stjórnvöld.

Trump greip ekki til aðgerða vegna upplýsinganna á þeim tíma, samkvæmt blaðinu, og sagðist á sunnudag ekki sjá eftir þeirri ákvörðun.

Forsetinn hefur jafnframt sagt Huang vera ágætismann, en bætti við að aldrei væri hægt að vita með vissu hvað væri í gangi.

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, vildi hins vegar ekki tjá sig um málið þegar fréttamenn spurðu hann á sunnudag.

Þrír áhrifamiklir þingmenn Repúblikanaflokksins hafa óskað eftir því að Huang mæti á lokaðan fund í Bandaríkjaþingi 18. nóvember til að ræða málið og öryggisráðstafanir Nvidia gegn erlendum njósnum.

Hjón í meira en fjóra áratugi

Nvidia er eitt verðmætasta fyrirtæki heims, metið á um 4.500 milljarða Bandaríkjadala. Fyrirtækið gegnir lykilhlutverki í þróun gervigreindar og framleiðir meðal annars tölvukubba sem tæknirisar á borð við Microsoft, Google, Meta og OpenAI nýta.

Fréttirnar hafa þegar haft áhrif á væntingar fjárfesta og bentu viðskipti fyrir opnun bandaríska hlutabréfamarkaðarins á mánudagsmorgun til um fjögurra prósenta lækkunar á hlutabréfum Nvidia.

Málið hefur einnig vakið athygli vegna fjölskylduímyndar Huang. Hann kynntist eiginkonu sinni, Lori Mills, í háskólanámi og giftust þau árið 1985. Þau eiga tvö börn sem bæði starfa hjá Nvidia.

Stephen Witt, höfundur ævisögunnar Thinking Machine, segir í samtali við BBC að Huang hafi lagt mikla áherslu á að sýna sig sem fjölskyldumann og jafnan talað af mikilli hlýju um eiginkonu sína.

Stjórn Nvidia hefur lagt áherslu á að ekkert bendi enn til þess að viðskiptaleyndarmál fyrirtækisins eða þjóðaröryggi Bandaríkjanna hafi verið í hættu.

Óvíst er hvaða afleiðingar rannsóknin mun hafa fyrir Huang, sem hefur stýrt Nvidia allt frá stofnun fyrirtækisins árið 1993.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅