Manndráp í Kópavogi: Banaði föður sínum í rúminu

Maður sem grunaður er um að hafa banað föður sínum á heimili sínu í Kópavogi þann 26. júlí síðastliðinn hefur verið ákærður fyrir manndráp og stórfellt brot í nánu sambandi. 

Maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan hann var handtekinn vegna málsins þann 28. júlí, en hann er sonur Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þingmanns Flokks fólksins, og hinn látni var eiginmaður hennar.  

Í ákæru héraðssaksóknara segir að ákærði hafi svipt föður sinn lífi þar sem hann lá í rúmi sínu. Hafi hann tekið hann hálstaki og þrengt að öndunarvegi hans, sett kodda yfir vit hans og þrýst að, og þrýst á brjóstkassa hans, allt með þeim afleiðingum að faðir hans lést af völdum köfnunar. 

Segir jafnframt að þess sé krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar, en til vara er þess krafist að hann ákærða verði gert að sæta öryggisvistun á viðeigandi hæli. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅