Erlendur ferðamaður lést í bílslysi á Snæfellsnesi
Erlendur ferðamaður á þrítugsaldri lést eftir alvarlegt umferðarslys á Snæfellsnesi í gærmorgun, sunnudaginn 8. nóvember. Bifreið sem hann ók fór út af Snæfellsnesvegi við Kleifá og hafnaði á hvolfi í ánni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi.
Lögreglu barst tilkynning um slysið klukkan 10:28. Tveir erlendir ferðamenn á þrítugsaldri voru í bifreiðinni þegar slysið varð.
Farþegi bifreiðarinnar komst út af sjálfsdáðum en ökumaðurinn sat fastur inni í henni. Þegar björgunarlið kom á vettvang tókst að ná ökumanninum út og var hann fluttur með þyrlu á Landspítalann. Hann var úrskurðaður látinn nokkru síðar.
Farþeginn var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítalann til skoðunar en meiðsli hans eru talin minniháttar.
Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗