560 þúsund íbúar á Íslandi 2076
Innlent | mbl | 9.11.2026 | 9:40
Íbúum á Íslandi mun fjölga úr 394 þúsund í ársbyrjun 2026 í 560 þúsund árið 2076, samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofu Íslands.
Eftir 25 ár er gert ráð fyrir að íbúar verði 500 þúsund. Samkvæmt spánni eru 80% líkur á að mannfjöldinn árið 2076 verði á bilinu 400 til 770 þúsund, að því er segir í tilkynningu.
Gert er ráð fyrir að hlutfall íbúa á vinnualdri (16 til 74 ára) muni lækka úr 74% árið 2025 í 67% árið 2076.
Fyrir árið 2046 verða íbúar eldri en 65 ára fjölmennari en íbúar yngri en 20 ára.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗