Verkfall gæti truflað íslenska landsliðið
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hittist á Spáni í dag og tekur þátt í æfingabúðum þar í landi fyrir leikinn gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni á föstudaginn kemur.
Fótbolti.net greinir frá því að KSÍ hafi fengið upplýsingar þess efnis að verkfall hjá flugvallarstarfsmönnum í Búlgaríu gæti haft áhrif á undirbúning liðsins.
Liðið stefndi á að fljúga til Búlgaríu á miðvikudag en það gæti færst til fimmtudags vegna verkfallsins, en óvíst er hvort af verkfallinu verður á þessari stundu.
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hittist á Spáni í dag og tekur þátt í æfingabúðum þar í landi fyrir leikinn gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni á föstudaginn kemur.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗