Strandveiðar með 19,4% óunna aflans
Kjartan Páll Sveinsson, er formaður Landssambands smábátaeigenda. Samtökin hafa brugðist við umræðu um útflutning á óunnum afla frá Íslandi. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Stórútgerðin vill hengja bakara fyrir smið þegar kemur að útflutningi á óunnum fiski að mati Landssambands smábátaeigenda (LS).
„Landssamband smábátaeigenda hafnar þeim málflutningi sem fram kom á Sjávarútvegsráðstefnunni um að strandveiðar séu rót alls ills þegar kemur að útflutningi á óunnum fiski,“ segir í tilkynningu.
„LS telur gagnrýni á strandveiðar vegna útflutningsins ekki eiga við rök að styðjast og bendir á að ákvarðanir um útflutning séu teknar af kaupendum aflans, ekki strandveiðisjómönnum.“
Bent er á að á síðasta fiskveiðiári hafi verið flutt út 12.392 tonn af óunnum ferskum þorski.
Þar af hafi 6.255 tonn verið flutt út á þeim mánuðum sem strandveiðar standi yfir.
LS áætlar að um 2.400 tonn hafi komið frá strandveiðiflotanum.
Standist sú áætlun er þar um að ræða tæpan fimmtung heildarútflutnings óunnins afla, eða 19,4%.
Áætlunin er sögð byggð á þeirri forsendu að meðalútflutningur á mánuði frá september og út apríl hafi haldist óbreyttur yfir strandveiðitímann og að hún taki mið af því að strandveiðar hafi verið stöðvaðar þegar helmingur veiðidaganna var eftir í ágúst.
„Að mati LS gefur áætlaður útflutningur upp á 2.400 tonn úr 14.314 tonna strandveiðipotti ekki tilefni til siðafárs að hætti SFS.“
LS segir hlutverk strandveiðiflotans vera að veiða fisk og koma honum samdægurs í land.
„Kaupendur aflans ákveða síðan hvort hann er unninn hér á landi eða fluttur óunninn út. Ef Samherji kýs að kaupa strandveiðiafla og flytja hann óunninn úr landi er það ákvörðun Samherja, ekki strandveiðiflotans.“
Landssamband smábátaeigenda segist leggja áherslu á að umræðan taki mið af þessari verkaskiptingu og segir: „Ekki hengja bakara fyrir smið.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗