Verður rekinn frá Lundúnum

Pierre Sage er að missa vinnuna.

Pierre Sage er að missa vinnuna. AFP/Henry Nicholls

Crystal Palace hyggst reka knattspyrnustjórann Pierre Sage eftir aðeins 16 leiki við stjórnvölinn, samkvæmt The Athletic.

Eftir 3:1-tap á heimavelli gegn Liverpool í gær er Palace á botni ensku úrvalsdeildarinnar.

Frakkinn tók við af Oliver Glasner í júní en hefur aðeins unnið tvo af fyrstu tíu deildarleikjum sínum.

Palace hefur fengið á sig 24 mörk, flest allra liða í deildinni, og Sage yrði fyrsti knattspyrnustjórinn í deildinni til að missa starfið á þessu tímabili.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅