Bróðir þekkts leikmanns sleppur við brottvísun úr landi - Á sér langa brotasögu

Bróðir þekkts leikmanns í ensku úrvalsdeildinni hefur unnið dómsmál gegn breskum yfirvöldum sem hafa reynt að vísa honum úr landi vegna umfangsmikillar brotasögu.

Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, hefur ítrekað komist í kast við lögin og afplánað nokkra fangelsisdóma vegna meðal annars vopnaburðar og umferðarlagabrota.

Hann situr nú í fangelsi og á jafnframt yfir höfði sér ákærur fyrir mannrán, frelsissviptingu, innbrot og rán.

Bresk stjórnvöld hafa síðan 2022 reynt að senda manninn til Vestur-Afríku, þaðan sem fjölskylda hans er upprunnin.

Dómari komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að brottvísun myndi brjóta gegn mannréttindum hans þar sem hann hefði alist upp í Bretlandi og hefði lítil tengsl við upprunaland fjölskyldunnar.

Maðurinn lék á sínum tíma með akademíum nokkurra úrvalsdeildarfélaga en fór aðra leið en bróðir hans.

Ekki má greina frá nafni knattspyrnumannsins af lagalegum ástæðum.

Bresk yfirvöld hafa áfrýjað niðurstöðunni og því er málinu ekki lokið.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅