Jóhann Freyr slapp við fangelsi í Taílandi þrátt fyrir þungan dóm
Jóhann Freyr Hallgrímsson, 37 ára gamall Akureyringur, var fyrir um mánuði síðan sakfellldur fyrir þjófnað og dæmdur í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi, í borginni Phuket á Taílandi.
„Dómurinn var síðan helmingaður og af því þetta var fyrsta brot var refsingu frestað í tvö ár,“ segir Jóhann í samtali við DV.
Mál Jóhanns vakti mikla athygli er DV greindi frá því í sumar. Taílenski fjölmiðillinn Khaosode birti þá frétt um að Íslendingur á fertugsaldri væri grunaður um þjófnað af kvenkyns leigubílstjóra í borginni Phuket. Hann var sagður hafa tekið síma og handtösku bílstjórans traustataki sem leiddi til þess að hún stöðvaði bílinn og flautaði ákaft til að fá hjálp vegfarenda. Vegfarendur skárust í leikinn sem leiddi til þess að maðurinn skilaði hlutunum.
Jóhann sagði í viðtali við DV í sumar að um óhappatilvik hefði verið að ræða og umfjöllun um málið væri á skjön við sannleikann. Hann segist hafa sofnað í bílferðinni en hann hafi verið mjög flugþreyttur og svefnlaus. Fargjaldið greiddi hann fyrir fram en er hann vaknaði nokkru síðar, þar sem honum var tilkynnt að hann væri kominn á áfangastað, var hann illa áttaður og skildi ekki hvers vegna eiginkona hans var ekki nálægt. Það fyrsta sem hann rak augun í var handtaskan sem hann hélt að tilheyrði eiginkonu sinni. Segist hann hafa rennt niður rúðunni og kallað á lögreglu. Bílstjórinn hafi kallað til mann að bílnum og Jóhann útskýrði áhyggjur sínar fyrir honum. Var honum þá sýnt í veskið og áttaði sig þá á mistökum sínum. Baðst hann þá afsökunar, fór út úr bílnum og kvaddi.
Hann var handtekinn á hóteli um kvöldið og sagðist hann ekki hafa fengið tækifæri til að útskýra mál sitt heldur hafi stanslaust verið talað ofan í hann.
Jóhann sagði við DV að hann hefði ekki meint neitt illt með framferði sínu og hann hafi einfaldlega gert slæm mistök.
Fær ekki vegabréfið en var ráðlagt að játa
Þó að Jóhann teldi sig ekki hafa haft ásetning til þjófnaðar er atvikið átti sér stað játaði hann fyrir dómi sekt samkvæmt ákæru. Það segist hann hafa gert vegna ráðlegginga og fyrirheita um að það væri eina leiðin fyrir hann til að komast heim í náinni framtíð. Var honum tjáð að hann myndi geta farið frá Taílandi þann 11. ágúst. Það að dómurinn var skilorðsbundinn var í samræmi við þessar væntingar en hins vegar hefur Jóhann ekki fengið vegabréfið sitt afhent ennþá og getur því ekki ferðast. Hann er því fastur í Taílandi þar sem hann dvelst með eiginkonu sinni.
Sjá einnig: Jóhann kominn í taílenskt fangelsi – Myndband af atvikinu
Jóhann hefur átt í tölvupóstsamskiptum við kjörræðismann Íslands í Taílandi. Hann hefur tjáð honum að hann fái vegabréfið afhent þegar formlegu málsferli er lokið, þar með talin brottvísun hans frá landinu. Þykir Jóhanni það ferli taka langan tíma.
„Ég vil samt taka það fram að það fer ekki illa um okkur hérna úti, það væri hægt að vera fastur á verri stað en í Taílandi. Hér er 30 stiga hiti alla daga en maður er farinn að sakna barnanna sinna. Það er búin að vera mikil óvissa og hvert loforðið af öðru svikið. Fyrst átti þetta aldrei að þurfa að fara fyrir dómstóla, svo átti þetta að vera fljótafgreitt, síðan var ég blekktur til að játa með því loforði að það væri eina leiðin til að komast heim 11. ágúst.“
Segir hann að önnur dagsetning hafi síðan verið gefin upp og sú átti að vera endanleg: hann átti að fá vegabréfið og geta farið úr landi þann 6. október. Síðan er liðinn meira en mánuður og Jóhann bíður enn eftir vegabréfinu sínu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗