Beint: Mannréttindi í framkvæmd

Ráðstefnan fer fram í Hörpu.

ÖBÍ réttindasamtök standa fyrir málþingi í Hörpu í dag í tilefni af því að þá verður ár liðið frá því að Alþingi lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Hægt verður að fylgjast með því í beinni útsendingu hér fyrir neðan. 

Aðalfyrirlesari verður prof. dr. jur. Markus Schefer, LL.M., sem er einn helsti sérfræðingur heims um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Markus er prófessor í stjórnskipunarrétti og stjórnsýslurétti við Háskólann í Basel í Sviss og fyrrum nefndarmaður í nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra munu ávarpa málþingið.

Málþingið fer fram í Hörpu og fundarstjóri verður Kári Hólmar Ragnarsson

Dagskrá málþings:

08:30 – Húsið opnar.
09:00 – Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ setur málþingið.
09:05 – Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Myndbandsávarp.
09:20 – Prof. Dr. jur. Markus Schefer, LL.M. Aðalfyrirlesari.
10:00 – Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra. Ávarp.
10:15 – Eiríkur Smith frá Mannréttindastofnun Íslands.
10:30 – Pallborðsumræður: Kári Hólmar Ragnarsson, Markus Schefer, Eiríkur Smith.
11:00 – Lok málþings.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅