Aðsend grein: Gagnaver og græn orka

Skúli Jóhannsson og Hákon Skúlason

Skúli Jóhannsson og Hákon Skúlason

Aðsend grein úr Morgunblaðinu

Forsíða Morgunblaðsins 23. október var lögð undir mikinn vöxt íslenskra gagnavera. Samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins (SI) hefur verið fjárfest fyrir um 167 milljarða króna í greininni frá 2022. Útflutningstekjur gagnavera og tengdrar starfsemi stefna í 72 milljarða á þessu ári, samanborið við 41 milljarð í fyrra, og störfin eru talin um 1.540. Í lok fréttarinnar voru varnaðarorð, framboð raforku gæti orðið flöskuháls.

Þetta eru að mörgu leyti góðar fréttir. En áður en takmarkaðri grænni orku er ráðstafað til langs tíma þurfum við að vita þrennt; hver ávinningurinn er fyrir Ísland, hver ber áhættuna og eftir hvaða viðmiðum er valið.

Stærðin

Alþjóðaorkumálastofnunin (IEA) metur að gagnaver heimsins hafi notað um 415 teravattstundir árið 2024 og að notkunin verði um 945 teravattstundir árið 2030. Það er um fimmtíu sinnum meira en öll raforkuframleiðsla Íslands, sem var um 19.000 gígavattstundir í fyrra.

Hér þarf að gæta að hugtökum. Afl, mælt í megavöttum, segir hve mikið er hægt að nota á hverri stundu. Orka, mæld í gígavattstundum, segir hve mikið er notað yfir ákveðið tímabil, til dæmis yfir árið. Samkvæmt SI nota íslensk gagnaver um 3,7% raforkunnar, eða um 700 gígavattstundir á ári. Það svarar til um 80 megavatta meðalafls allan sólarhringinn, árið um kring.

Erlendis eru nú skipulögð einstök gagnaver þar sem aflþörfin er mæld í gígavöttum, það er þúsundum megavatta. Eitt gígavatt, nýtt allt árið, samsvarar nær helmingi allrar raforku sem framleidd er á Íslandi. Ísland er því ekki raunhæfur kostur fyrir stærstu verin nema með því að binda stóran hluta orkukerfisins einum kaupanda. Hlutverk okkar hlýtur að vera annað og smærra.

Þótt gagnaveragreinin hér á landi sé lítil á heimsvísu stækkar hún hratt á íslenskan mælikvarða. Verne hefur kynnt áform um stækkun á Ásbrú upp á allt að 120 megavött, í þremur 40 megavatta áföngum. Það er hámarksafl, ekki meðalnotkun, og verkefnið er enn í undirbúningi. Verði það byggt að fullu og rekið nálægt fullum afköstum gæti þetta eina ver þó notað álíka mikla orku og öll greinin notar í dag. Hvaðan sú orka á að koma eða hvað víkur í staðinn hefur lítið verið rætt enn sem komið er.

Verðmætin

Fylgismenn gagnaveranna hafa sterk rök. Útflutningstekjurnar hafa vaxið hratt, starfsemin dreifist um landið og störfin eru vel launuð. Ef takmörkuð orka á að fara þangað sem hún skilar mestu er vel hugsanlegt að gagnaverin standi þar framarlega.

En útflutningstekjur eru ekki það sama og ávinningur fyrir Ísland. Það sem eftir verður hér eru einkum laun, kaup á innlendri vöru og þjónustu, skattar og tekjur orkufyrirtækjanna af raforkusölu. Erlent eignarhald og innfluttur tölvubúnaður þýða ekki að ávinningurinn sé lítill. Þau þýða hins vegar að tekjutalan ein segir ekki alla söguna. Aðalhagfræðingur SI segir sjálfur að skattspor greinarinnar hafi ekki verið reiknað.

Sama á við um störfin. Um mitt ár störfuðu 280 manns beint hjá gagnaverunum þremur. Önnur um 1.260 eru áætluð óbein störf, reiknuð með stuðli sem SI segir sambærilegan við erlend gagnaver. Það er viðurkennd aðferð, en áætlun er ekki talning.

Ekkert af þessu gerir greiningu SI ranga. Það þýðir að við vitum ekki enn það sem mestu skiptir, hversu mikið af tekjunum verður eftir á Íslandi.

Óvissan

Í greiningu SI segir að tekjur gagnaveranna ættu að vera stöðugri en tekjur sjávarútvegs og ferðaþjónustu. Það kann að vera rétt, en saga greinarinnar sýnir hve hratt viðskiptavinahópurinn getur breyst. Árið 2018 er talið að um 90% af afkastagetu íslenskra gagnavera hafi farið í rafmyntagröft. Nú er gervigreindin ráðandi. Það þýðir ekki að hún fari sömu leið, og reynslan sýnir raunar líka að verin gátu skipt um viðskiptavini. Hún sýnir hins vegar að eftirspurnin ræðst af alþjóðlegri þróun sem við ráðum engu um.

Mikið hefur verið rætt um hvernig ný tækni gæti „beygt kúrfuna“, sérhæfðir örgjörvar, aflrafeindatækni með um 99% nýtni og betri kæling. Betri nýtni á hvert reikniverkefni þýðir þó ekki sjálfkrafa minni heildarnotkun, því verkefnunum getur fjölgað jafnhratt eða hraðar. IEA setur því fram breitt bil eftir sviðsmyndum, gæti raforkunotkun gagnavera árið 2035 orðið allt frá 700 upp í 1.700 teravattstundir. Óvissan snýst ekki um hvort eftirspurnin hverfi, heldur hve mikil hún verður og hve hratt hún vex.

Áhættan

Þetta skiptir máli vegna þess að tímarammarnir eru ólíkir. Búrfellsstöð hefur verið í rekstri frá 1969 en raforkusamningar við gagnaver eru gjarnan mun styttri. Landsvirkjun samdi til dæmis við atNorth á Akureyri til fimm ára árið 2025. Tölvubúnaðurinn sjálfur er endurnýjaður á fáum árum.

Ef ný virkjun er réttlætt með eftirspurn gagnavera ræðst áhættan af samningunum. Skuldbindur kaupandinn sig til að greiða fyrir orkuna hvort sem hann notar hana eða ekki? Hvaða tryggingar fylgja? Er hægt að selja orkuna öðrum ef hann hverfur? Orkan verður ekki ónýt þótt einn kaupandi fari, en verð og skilmálar sem næsti kaupandi býður geta orðið aðrir. Þessar upplýsingar eru sjaldnast opinberar, þótt stærsta orkufyrirtæki landsins sé í eigu ríkisins.

Hákon Skúlason og Skúli Jóhannsson  eru framkvæmdastjóri og verkfræðingur.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅